Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 5
Ég á hálft í hvoru við sjálfan mig.
Jafnt við Nýhil sem Nykur – Medúsu eða Listaskáldin vondu – hópleysingja á stærri forlögum og sjálfsþurftarbændur. Legg sama mæli á Jón Örn Loðmfjörð og Hannes Pétursson.
Á hverju ári eru gefnar út margar góðar bækur og margar vondar. En þær sem eru góðar eru fyrst og síðast vel framkvæmdar – ég hef í raun ekki nema takmarkaðan áhuga á markmiðum þeirra.
Ég tala um íslenska ljóðlist vegna þess að hún stendur mér nærri. Ekki vegna þess að þetta eigi ekki víðar við.