Archive for March, 2009

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 9

Tuesday, March 31st, 2009

Svo ég linni ekki látum – skrifa íslensk ljóðskáld lítið sem ekkert um ljóðlist. Hugsi þau um hana yfir höfuð þá kjósa þau að halda því fyrir sjálf sig og deila því með engum – sem orsakar menntleysi, að sjálfsögðu, og samræðulaust samfélag er ævinlega dauft í anda. Sem fær mig til að halda... »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | No Comments »

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 8

Tuesday, March 31st, 2009

(Svo ég haldi áfram að rifja upp gamlar umkvartanir) þá er ægilega slappt til þess að vita að stærstur fjöldi íslenskra ljóðskálda hefur engan áhuga á að mæta á upplestra nema þau séu sjálf að lesa. Í íslenskri ljóðlist eru engar víglínur skráðar í jörðina – en auk þess er engin tilfinning fyrir samfélagi.... »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | No Comments »

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 7

Tuesday, March 31st, 2009

Ljóðskáld sem hvorki kaupa né lesa bækur eru eðli málsins samkvæmt dálítið úti að aka. Líkt og gildir um annað glóruleysi getur það verið skemmtilegt – það getur verið hlægilegt og djúpviturt, naívt og fallegt. En í nær öllum tilvikum er það fyrst og síðast sorglegt – eins og að eiga kalkaðan ættingja. Íslensk... »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | 4 Comments »

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 6

Monday, March 30th, 2009

Ég tala ekki endilega fyrir nýrri ljóðlist heldur fyrst og síðast fyrir annarri ljóðlist eða jafnvel enn heldur öðrum ljóðlistum. Opnari vettvangi þar sem minna er lagt upp úr ljóðum sem minna á önnur ljóð. »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | No Comments »

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 5

Monday, March 30th, 2009

Ég á hálft í hvoru við sjálfan mig. Jafnt við Nýhil sem Nykur – Medúsu eða Listaskáldin vondu – hópleysingja á stærri forlögum og sjálfsþurftarbændur. Legg sama mæli á Jón Örn Loðmfjörð og Hannes Pétursson. Á hverju ári eru gefnar út margar góðar bækur og margar vondar. En þær sem eru góðar eru fyrst... »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | No Comments »

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 4

Sunday, March 29th, 2009

Íslensk ljóðlist er farartæki til tjáningar á tilfinningum og speki. »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | No Comments »

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 3

Sunday, March 29th, 2009

Íslensk ljóðlist dagsins í dag, í gær og síðustu vikur mánuði ár er að jafnaði ólæsileg fyrir tilgerð. Ástæðan er sú að form hennar á lítið sem ekkert erindi við samtímann. Hin alvarlega ofmeðvitaða en lítt sjálfsmeðvitaða myndlíking hefur í tímans rás orðið að djóki. Þess vegna eru ljóðabækur dregnar upp í partíum og... »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | No Comments »

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 2

Sunday, March 29th, 2009

Einungis er spurt hvort markmiðum verksins hefur verið náð. En ekki hvort það hafi verið til nokkurs – hvort markmiðin hafi verið skemmtileg, fræðandi, sálaukandi, upplífgandi, eyðileggjandi, niðurdrepandi. Í íslenskri ljóðlist er ekki spurt um estetík, heldur hæfi, kunnáttu. Ekki spurt um hvað skáldið gerir heldur hvort það geti það sem það reynir að... »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | No Comments »

Íslensk ljóðlist: Fullyrðing 1

Saturday, March 28th, 2009

Þetta er fyrirsjáanlegt: Íslensk 20. aldar ljóðlist er undirskipuð frásögn, drifin áfram af myndlíkingu(m). »

Tags: ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Um ljóðlist | 1 Comment »

Tallinn, Akureyri, Helsinki, Malmö …

Tuesday, March 24th, 2009
Tallinn, Akureyri, Helsinki, Malmö …

Á fimmtudag les ég upp í Malmö, ásamt finnlandssænska ljóðskáldinu Cia Rinne og nestori hins sænska konkretisma, Bengt-Emil Johnson – auk ljóðagrúppunnar 3 Advokater. Malmö Litteraturbar Stanza – Inkonst.com 26.03.2009 – kl. 20.00 Í anda og mynd verð ég á Akureyri á Populus Tremula þann 3. apríl, og flyt ljóð – þó líkaminn verði... »

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Posted in Fjallabaksleiðin, Fréttir, Um ljóðlist | No Comments »