Sharon Mesmer

Óþolandi sykursýkistussa

Óþolandi sykursýkistussan þín.
Lystarstols- offitu- sykursýkistussan þín.
Heimska, óþolandi, hæfileikalausa sykursýkistussa, éttu sykursýki.
Þú og þetta tussuskrímsli sykursýkis-dóphausinn hann pabbi þinn,
og sykursjúki kötturinn þinn, brjóstumkennanlegi, aldurhnigni, sykursjúki kötturinn þinn sem étur fugla –
tussufugla –
rassríðandi kroppaskrímsli, þú færð mig til að vilja leggjast í sykursýkisdá
eins og þarna óþolandi einkaritarinn í Ally McBeal, breska freðýsu sykursýkis tussuböllurinn þinn.
Sjáðu til – ég hef leikið mellu, sykursjúkan tukthúslim sem þarf á hormónum að halda,
fráskilinn skítrassgats hóruunga, rúnklistartussu, fávita, og – andskotinn eigi það,
öll þessi sykursýki er að gera mig tussulega.
Drullastu til að éta sykursýkina þína, tussa.
Ég hef aldrei séð neinn sem var svona hávær og skítheimskur og óþolandi og sykursjúkur.
Það síðasta sem ég þarf á að halda er að uppgötva að ég sé sykursjúk,
ég sem á sex sykursjúka ættingja sem lemja hver annan til ólífis
með sínum eigin skóm.
Er til spjallrás fyrir þetta? Því þetta er jú andskotanum meira óþolandi.
Taktu bara með í reikninginn að ég er harðbrjósta tussa, Millicent.
Ég er með fáránlega frábært sykursýkissvæði og ég skal gera sykursjúkling úr þér.
Ég er það sem þeir kalla „pre-emptive“ sykursýkistussa.
Topp módel tussa, þig langar ekki að vera sykursjúklingur í
skrifblokks-sæðis-hamars/nagla aðstæðum.
Ég get verið ógeðslega sykursjúk, og þú getur bara verið örlítið sykursjúk.
Þú skalt kalla mig drottningartussuna, tussan þín,
þú ert óþolandi eins og djöfuls óþolandi
sykursýkistussa.

Sharon Mesmer

Tags: , , ,

Svaraðu kallinu!