Rodney Koeneke

Slavoj Zizek

leyfið börnunum
að koma til MySpace
farið úr eldhúsinu eða ég sæki um skilnað

stríðið eins og það átti sér stað í kennslustundum mínum
kraftur internetsins versus fjölmenningarstefna samtímans
Slavoj Zizek trén standa öll í blóma

breiðast út fyrir sakir hárlenginga minna á YouTube
það var ekki að ég vildi þetta sérstaklega
hún bara gekk og þetta svona datt eiginlega af

þegar litið er til Etrúra
hlýtur að hafa verið skýjað
tunglið í fötu og vinir þvert yfir Alpana

það virðist vera fjarlægð í verkum þínum
SÞ-leiðbeinendur í dölum Slóveníu
kenna sérkennslunemum í gaggó að spila á gítar

líf mitt á tíunda áratugnum
fjármagnar vandamál
ungra gothara sljóvgaðra af mögnurum

Afsakið, ég er tímabundið vant við látinn
annars staðar en á einum stað í eldhúsinu þar sem ég fæ tvo takta
Zizek, Slavoj (f. 1949)

Amerískar landnemakonur
gerðu bragga úr þriðju mósebók
sérleyfishafar umkringja New York

Vertu sæll Slavoj Zizek
ég ætti líklega að klára Comus
safnöskju af Ólympíunælum

Við konan mín erum foreldrar
fallegrar dóttur frá Kína
hvers vegna getur sameiginlegt tungumál ekki skapað frið

Rodney Koeneke

Tags: , , ,

Svaraðu kallinu!