Neytendalögin
Neytendalögin (Konsumentköplagen) eftir sænska ljóðskáldið Idu Börjel er sprokmateríalískur texti – ljóðabálkur skrifaður eins og lagabálkur um samband kaupanda og lesanda, auk hins óræða þriðja – raddar sem er utanaðkomandi og ræðir við áðurnefndar persónur, kaupanda og seljanda. Þannig blandast saman lög um samskipti kaupanda og seljanda og umfjöllun kaupanda og seljanda um lögin um samband þeirra, og umfjöllun þriðja um kaupanda og seljanda og lögin um samband kaupanda og seljanda.
Bókin lýsir samtímis einhverri tegund kapitalískri hysteríu sem gegnsýrir raunveruleikann – þeirri ofurtaugaveiklun sem verður til í kerfi þar sem þú getur treyst því að allir eru að ljúga að þér. Öll samskipti markaðs við neytanda eru sem dæmi óheiðarleg – markmið auglýsinga er ekki að segja þér satt í neinum heiðarlegum skilningi þess orðs, heldur að fá þig til að gera eitthvað sem þú myndir (kannski? líklega?) ekki gera annars. Þess vegna krefstu þess að reglur verði settar um alla skapaða hluti – vegna þess að þér er ómögulegt að treysta nokkrum.
Markaðsins er að lokka þig inn og fá þig til að kaupa, honum er að mestu sama hvað þú kaupir og selur þér því einfaldlega það sem er auðveldast að selja (froðu, drasl, ódýrar pakkningar – hann selur þér auk þess hugmyndina um munað, að líf þitt verði betra í bólstruðum leðursófa).
Neytandans er að fyllast af þrá sem byggist að mestu á þeirri vanmáttartilfinningu sem heltekur hann ef hann fær ekki að eiga það sem honum er talin trú um að hann þurfi til að verða hamingjusamur (en markaðurinn sýnir honum stöðugt fram á hversu óhamingjusamur hann sé – hvernig maður er eilíflega pirraður á gömlu dömubindunum sínum, og hvað fötin manns eru upplituð af gamla þvottaefninu – sem er auðvitað mjög pirrandi, hver þráir að ganga í gráu?)
Þrá neytandans, já græðgi jafnvel, leiðir til þess að hann fer sjálfur að leita eftir meira monní og beitir til þess viðurkenndum aðferðum á borð við prútt og þjófnað, og leitun að ódýrustu vörunni sem leiðir til ódýrari framleiðslu, lægri launa, meiri taugaveiklunar, meiri þrælkunar, meiri ósvífni í viðskiptum og svo enn meiri taugaveiklunar.
Eins og áður segir bregður Ida fyrir sig lagamáli í bókinni, sem blandað er persónulegri yfirlýsingum, ýmist inni í sjálfum lögunum, eða í hliðsettum textum þar sem kaupandi og seljandi ávarpa hvor annan og svara. Þessi rammi staðsettur lesandann rækilega utan hins hefðbundnari ljóðræna (eða lýríska) heims – hvers hlutverk er oftar en ekki að láta ein skrauthvörfin bíta í rassinn á þeim næstu, að fjölga heimspekilegum sjálfssannleikum (einum með öðrum) og sanna með myndlíkingum það sem verður ekki satt með öðrum aðferðum.
Þetta er fimm stjörnu bók og mér finnst hún frábær.
Rýni fyrir sænskumælandi:
Amelie Björck i Göteborgs-Posten
Kristian Carlsson i Tidningen Kulturen
Nýlega endurskoðuð útgáfa af þýðingu á broti úr Neytendalögunum, sem birtist fyrst í bókinni Gáttir, sem Kári Páll Óskarsson ritstýrði og kom út hjá Nýhil fyrir síðustu ljóðahátíð.
Kaupa verkið í hinni yndislegu bókabúð Audiatur.