Mette Moestrup

Ást og stærðfræði

……………………………………..tileinkað Evu / Nam Sook

Ég drakk jasmínte janúarmorgun árið 2004.
Ég var ringluð og 34 vetra.
Mér fannst ég tala í tölum.
Rödd innra með mér reyndi að muna u.þ.b. 500 ára
gamalt, kóreskt ástarljóð eftir Hwang Chin-I (1506-1544),
en önnur reyndi að skilja § 1,1
í Lögum um breytingar á útlendingalögum frá 27. desember, 2003.
Önnur röddin spurði: Hvað hefur Hwang Chin-I með § 1,1
að gera? Munurinn er mikill, sagði hin
eins og á ást og stærðfræði. Hm, sagði önnur
og hvíslaði Ég deildi í langa janúarnótt með tveimur
og lagði annan helminginn undir teppið
. En hin
hringdi í aðlögunarráðuneytið í síma 33923380
og starfsmaður þar, við skulum kalla hana Alice Mortensen, sagði að § 1,1
væri „tilslökun“ á tengslakröfunni fyrir alla eldri en 28 ára
með ríkisborgararétt frá fæðingu (og í Danmörku fæddist ég árið 1969).
Teppið er rósótt og lyktar eins og vorgola, en hvernig er næsta vers?
hvíslaði önnur röddin. En hvers vegna er 6 ára aldurstakmark
fyrir börn sem ættleidd eru frá útlöndum í § 1,1? spurði hin
Alice Mortensen, sem sagði, að lögin legðu að jöfnu ætleidd börn á aldrinum 0-6 ára
og fólk með danskan ríkisborgararétt frá fæðingu (t.d. frá 1969)
hvað varðaði dvalarleyfi og sameiningu maka. Eitthvað um helming,
hinn elskaða og teppið … og þegar hann kemur brýt ég fram helminginn
tommu fyrir tommu til að framlengja nóttina
, hvíslaði önnur, og hin
kvaddi Alice Mortensen kurteislega og las kafla í viðauka 21:
…….. því yngra sem hið erlenda kjörbarn er við komuna til Danmerkur
…….. þeim mun minni tengsl og minningar um upprunalandið
…….. mun barnið hafa, í grundvallaratriðum.
Jahá! Það er kannski vegna þessa sem börn sem ættleidd eru eldri en 6 ára
falla ekki undir „tilslökunina“ um tengslakröfuna frá 28. ári,
heldur fyrst, hafi ég skilið rétt, frá því 34.
28 + 6 = 34!
- þetta er fáránlegur útreikningur! hrópaði hin
og önnur hvíslaði þetta nærri því 500 ára
gamla ljóð eftir Hwang Chin-I (1506-1544)
Ég deildi
í langa janúarnótt með tveimur
og lagði annan helminginn undir teppið,
rósótt og lyktar af vorgolu.
Og þegar hann kemur brýt ég fram helminginn,
tommu fyrir tommu, til að framlengja nóttina.
Sjáðu, þetta er einföld stærðfræði, stundi hin,
engdi sig og æpti: „Nei, en fáránlegt! Hwang Chin-I var 38
þegar hún dó, þannig að … hefði hún verið ættleidd 6 ára
og ástfanginn af ódönskum, t.d. kóreskum manni, þá styttist vornóttin sbr. § 1,1
niður í … fokking 4 ár!
Sjj. Hvað hefur Hwang Chin-I með § 1,1
að gera? sagði önnur.
Æi, ekki neitt, andvarpaði hin, en það er eitthvað rangt við § 1,1.
Að ættleiða er að velja, og barnið velur ekki hvort það er 0 eða 7.
Hvíslaðu því ekki um lyktina af rósóttu teppi. Æptu nei við aldurstakmarkinu! NÚNA!
En ég vil heldur hvísla um jasmínu og love, hvíslaði önnur,
og hin æpti: love stafast eins og love á dönsku, og § 1,1
er bara dulin love-lov! (og þá sló klukkan 12)
Með öðrum orðum lög um ástina, hélt hin áfram, eins og 24 ára-
reglan, og önnur hvíslaði 3
sinnum: Sjj, sjj, sjj, meðan klukkurnar glumdu 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 = 24

Átti þetta að vera útkoman?
Nei.
Þetta gekk ekki upp.

Afsakið, ég var ringluð af
love.

———————-

Og jasmínteið var orðið beiskt og kalt,
eins og ég sagði sjálfri mér að ég skyldi aldrei verða.
Það var ekki of seint, það er aldrei of seint
að fara í fallegan kjól og
skella sér í partí á miðnætti.

Mette Moestrup

Tags: , , ,

Svaraðu kallinu!