Linh Dinh
Tungumál og kjöt
Tungumálið er úr kjöti. Án kjöts
er ekkert tungumál. Svo mikið er víst.
Kjötmikil orð löguð og undin af kjötmikilli tungu,
eins og meyr, safarík eða skorin, til dæmis, væru
merkingarlaus án vöðva, sina og fitu
sem vafin eru um beinin. Orð eins og dauð, indæl,
guggin, snerting, þrá eða fullnæging. Ennfremur
er hversdagsmálið úttroðið af kjöti:
ófrægðu ekki kjötið mitt. Kjötstykki,
hún hafnaði þessu fyrirtakskjöti.
Linh Dinh