Katie Degentesh

… Endurbyggjum Tvíburaturnana í New York … á pizzunni þinni

Ég er reiðari en þjónn yfir tíu senta þjórfé vegna þess sem gerðist þegar ég sagði elsku hjartans möffinsinni minni að Tvíburaturnarnir – stóðu hlið við hlið, á meðan starfsliðið og ég fylgdumst með tvíburaturnunum í Heims … ég nefni þetta verkefni „Að leita að böku en finna bara möffins“. Hvað … Hvað gæti verið betra en heimatilbúin möffins eða smákaka? Tvíburaturnarnir …

Sameinuð stöndum við og fylgjumst með fyrstu giftingargleðimöffins Tvíburaturnanna … Fyrsti hamingjusami hallærislegi möffins-moddarinn … Citta Grunnskólinn ætlar að halda sex möffinsbasara og láta allan ágóðann renna í Tvíburaturnasjóðinn…

Sökudólgarnir á bak við svindlið segja að með hugtakinu „tvíburaturnar“ eigi þeir við Viðskiptamiðstöðina … Þá þurfa þeir að borga með einhverju meiru en bananahýði eða Hostess möffins. …

Hægra megin fengu gestir litríkan möffins fána. … Sleginn gríðarlegri vantrú fylgdist hann með tvíburaturnunum hrynja til jarðar á hundruðir New Yorka … Velkominn aftur á þurrt land, Kafteinn Möffins. …

Nú, þegar maður spilar þetta eftir möffins áætlun eins og á síðasta ári með einungis fjórar flugvélar … munu gleðjast að heyra að risavaxinn syngjandi Hostess möffins opnaði … strax í eftirleik árásanna á Tvíburaturnanna þann 11. september fannst hálfétin árstíðamöffins á bringunni á honum … Síðan, eftir mynd af krúttlegu geimvélmenni í gervi hvolps sem gæddi sér á möffins, stökk íkorni upp í fangið á mér og fékk sér bita af möffinsinu sem krýndi bygginguna og býður upp á – bauð upp á – útsýni á báða tvíburaturnanna…

Tvíburaturnarnir í dag í … Nafn: sykur ástar möffins þann 14. september. Boxin – sem í reynd eru appelsínugul – Loftsýn á eyðilagða tvíburaturnanna. SÖNNUNARGÖGN LÍSU: MÖFFINS LÍSU.

Því að djúpt við hjartarætur þeirra ungu og gömlu, er ekki alltaf auðvelt að finna upp nýjungar fyrir hina ljúffengu möffins … Dapurlegt að sjá tvíburaturnana, samt… birt kl. 12:28 | Hvarta tal’um, Willis? Kafteinn Möffins snýr aftur! Bændurnir fagna. …

Tvíburaturnarnir voru lögmæt skotmörk, þeir studdu við bakið á bandarískum efnahags … til að endurskíra Bombay Mumbai er ekki nokkuð sem sýnir fram á öfgastefnu, möffins … padda, sykurstöng, teiknibóla, vínber x2, xs tyggjókúlusjálfsali, hjartastrengir, möffins … golf köntrí engill heldur tvíburaturnum …

Síða 1. „Trúfrelsi, málfrelsi, persónufrelsi vernd gegn fangelsun án dóms og laga; og réttarhöld með kviðdómi …

… á valdatíma Carter-stjórnarinnar, hélt annar nemandi fram, stóðu Bandaríkin frammi fyrir „Gestatökunni í Íran“. „Það hlýtur að hafa verið hrafnasparkið á möffinsinni … „Ég hef enga eina sérstaka manneskju í huga, Möffins mín. … Hryðjuverkamenn réðust á Tvíburaturnanna í New York borg. … 14:30 Nokkrir félagar mínir í stétt listamanna gáfu mér afmælismúffu. 17:30 … Ég kveiki á sjónvarpinu og hrekk við þegar ég sé Tvíburaturnana á kafi í eðlilegum umferðarstraumi á götunum kl. 06:45 Þeir eru að segja eitthvað um að flugvélar hafi klesst á tvíburaturnana – - og flugvélin hitti … þyrlu bankaræningja sem festist í vef á milli tvíburaturnanna … sérstöku kökurnar hans, en þeir áttu bara Súkkulaðimöffinsmix Denna Dæmalausa …

Katie Degentesh

Tags: , , ,

Svaraðu kallinu!