K. Silem Mohammad

Djöfladrengur

ritgerðin sem ég á að vera að skrifa
er kritísk analýsa á leikriti Shakespeares
Ég vil ekki flytja til New Jersey og hvar er osturinn

Mike „djöfladrengur“ Barbier bíður í biðröð
eftir samlokum með grilluðum osti og beikoni
ekki ósvipað og kölski Miltons vill í stríð við Guð

í raun er hann El Diablo stóri dökki osturinn
óseðjandi fígúra á vitsmunalegum villigötum
sem hrynur „niður tíu þúsund faðma“

„Sófókles“ „Pliny“] [„sannleikur“
„samstaða“ „smáskeina“] [„ostur“ „súrefni“
tilvist hlutar tjáð hugmynd

sex túpur af raksápu innihéldu núll paradís
blautar eins og sundurtættur ostur
maurar Japan maurar maurar Japan kakkalakki kakkalakkar kakkalakkar Japan

dót sem ég hugsa um
verðmunur per únsu á milli almennra fjallasvæða
við segjum að það hafi rotnað eins og ostur“

„ég veit að cool ranch eða nacho cheese
eiga samt sem áður dirfskufullar rætur sínar
að rekja til þessa sama firrta sagnfræðilíkans

stórkostleg samsetning
eftirlætis persónan mín var hákarlinn
ertu að reyna að segja mér að það sé enginn ostur í Hringadróttinssögu

K. Silem Mohammed

Tags: , , ,

Svaraðu kallinu!