Jesse Ball

Göng inni í ofninum

Hann fann göng inn í ofninum,
sem lágu að að tröppum.
Þetta olli honum miklum áhyggjum,
en sömuleiðis stolti og lífsgleði.
Hann lagði engu að síður ekki í að fara
sjálfur inn í ofninn, heldur sendi litla bróður
sinn í staðinn fyrir sig. Þetta þótti honum
góð hugmynd í fyrstu, en þegar bróðir hans
hafði ekki snúið aftur þremur dögum seinna,
fór hann að efast um visku
fljótræðis síns. Hann ákvað að
fara inn á eftir honum. En þá höfðu
göngin skroppið saman, og engin manneskja
af eðlilegri stærð gat lengur komist inn. Já, auðvitað,
ég sendi hann inn, því ég er of stór
til að komast sjálfur í gegn.
Svo er hvort eð er, muldraði hann í barm sér,
ábyggilega mjög indælt þarna inni.

Jesse Ball

Tags: , ,

Svaraðu kallinu!