Jack Kerouac

Amerískar hækur

Gul blóm árla morguns
hugsa um
bytturnar í Mexíkó.

Engin símskeyti í dag
það féllu bara
fleiri lauf.

Nótt skellur á,
strákur lemur túnfíflana
með priki.

Lyfti upp
malandi kettinum að tunglinu
og andvarpaði.

Mökkölvaður,
skrifa bréfin
við þrumuveður.

Yfirgefinn hafnaboltavöllur
glóbrystingur
skoppar eftir ströndinni.

Allan liðlangan daginn
gekk með hatt
sem var ekki á höfði mér.

Gengur yfir fótboltavöllinn
á leið heim frá vinnu –
einmana kaupsýslumaður.

Eftir skúrina
á milli rennvotra rósa
fugl brýst um í baðinu.

Smelltu fingrum
stöðvaðu heiminn –
regnið fellur harðar.

Nótt skellur á,
of dimmt til að lesa af síðunni,
of kalt.

Á eftir hvor öðrum
kötturinn minn staðnæmist
við þrumurnar.

Þvottur hengdur á snúru
í tunglskini.
Föstudagskvöld í maí.

Skósólarnir mínir
eru hreinir
af gönguferð í regninu.

Glóormur
sem sefur í þessu blómi –
þú gleymdir að slökkva ljósin.

Jack Kerouac

Tags: , ,

Svaraðu kallinu!