Jack Kerouac
Sjór
Cherson!
..Cherson!
....Þú blístrar ekki bara
......Dixie, Sjór
...Cherson! Cherson!
........Við kalkmálum feðurna
......hér að neðan!
....Eldhúsljósin kveikt –
........Sjávarvélar frá Rússlandi
.......sjávarfuglar hér að neðan –
....Þegar steinarnir sjóa út froðunni
........þekki ég Hawaii
.......missi vitið og klöngrast
......upp tvífættan hamarinn
........að botnleðju
.........milljón ára –
Sjú – Sja – Sjirsj ––
Deyðu nú saltljós
...Þú billjónáraði
.....brjótur grjóta
Gavrúúm
Sjófugl
Gabrófugl
Sorglegur eins og víf og hlíð
Elskaður eins og móðir og þoka
Ó! Ó! Ó!
..Sjór! Osj!
Hvar er þinn litli Neppítónn
......í kvöld?
Þessar blíðu trjákvoðusíður
sem hafa ekkert með
árekstrargný þinn að gera,
.....lygari sjór, aa,
gerður fyrir grjót
kútveltir sjófugli niðurgrefur
....fótspor holar þara
....hreyfist ögrandandi
....rekst utaní? A, aftur?
Er vínið salt hér?
...Flóðbylgjan eldhús?
Vélar Rússlands
...í mildum rómi þínum ––
Les poissons de la mer
....parle Bretons––
Mon nom es Lebris
...de Keroack––
Parle, Poissons, Loti,
...parle––
Parlandi Hafið slípar
...lemur billjón steina––
...Ker plotsj––
......Strönd – skór––
Guð – hvatvís––
Höfðinn minnir á
langnefja kollíhund sofandi
með ljósin kveikt í
..nefinu, meðan hafið,
..hlýðir hagræðingum
..eftir höfði hans, slær
..takt sem getur
..og mun ónáða,
..í sandtakti yðar
..hugsun––
––Stórar ansans axlir
á þessum tíkarsyni
Parle, O, parle, mer, parle,
..Sjór talaðu við mig, talaðu
......við mig, lýsir upp silfur þitt
....Þar sem hola opnaðist í Alaska
......Grár – suss – vindur í
......Gilinu vindur í regninu
........Vindur í öldulaga útbrotunum
......Hreyfist og t vetlar
.........Haf
............Haf
..............Haf á kaf
Ó fugl – la vengeance
..........De la roche
............Cossez
................Ah
Hrár réðst hann á hliðið
hrár yfir hjá Cherson, Cherson,
við kalkmálum feðurna hér að neðan
––blautur kross, þaraskreyttur
vafinn – Þetta glott hughreystandi
...sefur lágt – Bára – Ó, nei,
...suss – sjúrk – Bomm plopp
...Neptúnus nú með opinn faðminn
.....meðan ein milljónir sálna
...sitja tendraðar í sortahellum
–– Hvaða gamla gelt! Hunda
..fjallið? Niðri hjá Sjávar
....vélunum? Guðsvíma – Strönd –
..Shaw – Sjú – Ó milda stuna
......við bíðum með hárið vafið líkt og
....lævirkjar – skíttmeðða – Hvílstu eigi
––Samsærðuða, bisb, tesj, seðilar,
..re tav, pló, araheit,
sjirsj, – Hver hvíslar þarna hinum
.....megin – hjákátleg jarðnesk lækjarsytra!
...Þokan þrumar – við bregðum
.....silfurljósi á fés – Við
...tókum við hetjunum – Billjón
......ár eru ekki neitt ––
Ó borgirnar hér að neðan!
..Mennirnir með þúsund
....hendur! stólpar
....störu þeirra uppímót!
....kórallar ljóða þeirra!
......Sjódrekarnir mýktir, kjöt
......fyrir holdugan fisk ––
.........Navörk, navörk, fiskar
......sjávarins tala bretónsku––
......skvamp jafn milt og fólksins
....draumar – Það er fólk inn
.......og út strandlengjuna, þau nefna
........það strandlengju, sjór nefna það
..........pissj ripp plossj – Þessir
............5 milljarðar ára síðan
..............jörð sáum við talsvert af
..................chan – Kínverskar eru
....................öldurnar – skógana
......................dreymir
Mennsk orð úttala ekki
..málamyndasorgina eldri
..en aldin þessi alda
..útbrjótandi særir
....sandinn með plasski
....úr snarsnúinni söndugri
hugsun – Ah breyta
...heiminum? Ah ákvarða
...verðið? Eru reipaðir
......englarnir allir í sjónum?
......Aa reipugi otur
...hrúðurkarlaður vera––
........Aa hellir, Aa krossj!
..........Fjöðrum prýddi sjór
Of mikið stutt – Hvar
...frú Nop í kvöld?
Skreif Kerarc’h
..í labidalíu
...aristótelíu garðinum
með slími á milli
––Og Rantí hórari
..sem togaði perlur með
...reipi í kórónu
.....Kóngs með
.......rugginu í
....skógi ætíðarhafa?
Ekki ætíðarhöf, veru-höf
–––Skriðdýr
........Ka-plassk!
Konan með líkama sinn
í sjónum – Froskurinn sem
hreyfir sig aldrei og þrumur, splassk
– Snákurinn með líkama sinn
...undir sandinum – hundurinn
...með ljósið á nefi sínu,
...með lappir uppí loft, með svo
...risavaxnar axlir að þær ná allt aftur á
...regnsprungurnar – Laufin drífa sig
.....til sjávar – Við leyfum þeim
........drífa sig að blotna og gefum
....‘eim gamla saltklinkið,
......núdistinn heldur sjálfsagt að
........þau renni beinustu leið úr Við-Hafi
..........hvort eð er – Engin dómadagslæti
........á sunnudagseftirmiðdögum – Við
hlaupum gegnum innsta kjarna hamrabeltanna,
.blommum upp hellana, aftengjum ekkert
....hlaup eða hlaupkennda þenkjandi
........hugsuði ––
............................Herir okkar þessir
..............akkerisfestu þarar í
....................víkunum lykta
af hlaupkenndu salti––
.......Teygðu þig, teygðu þig, sum laufin
hafa enn ekki drifið sig nógu
nærri – veltu þér veltu þér, niðurinn
í söndugu hákarla gólfi
grænugur pali andarva
–– Ah, aftur – Ah, fram ––
Ah siisssj – Búmm, burt,
dómur, hvern dag – Æðar við
treystum – Sjórinn er Við ––
..Parle, parle, búmm er
.....Jörðin – Arííí – Shaw,
......Sjú, Sjússj, Flögr,
.......ravad, tapavada páá,
rak, lak, þak, ––
.......Nei, nei, nei, nei, nei, nei ––
.......Ó, ja, ja, ja, jó, jer––
.....Suss––
......Hver er sá? Sá eini? Hver er
sá? Sá plasskaði eini––
...Sá eini plasskaði? sá sami,
.....ah, búmm – Hver er þessi maur
þessi risavaxni gullni saltklinks
maur sem magnar upp fjall minna
fóta? Það er Finnandinn, sem finnur
..breytingu í hugsun sem sameinast
....búmmkrókunum í hellunum
...er ljós – Og byggði hús þar
........að ofan? Óttastu aldrei,
..........naver foir, les bretons qui
parlent la langue de la Mar
.....sont español comme le cul
.......du Kurd qui dit le maha
......prajna paramita du Sud?
........Ah oui! Ke Vlum!
...........Ólundarlegi sjór, þaggaðu niður í mér––
....Þeir koma ekki til með að reyna
það þeir þarna maurar sem slíta
....út jarðgöngum á viku
......jarðgöngin hafa unnið milljón
.......ár – nei – Niðri við
.........höfðann slurpar eftir þara,
........kjúklingur hafsins
..........gakk bjakk! þeir sofa––
......Ahróp, ahróp, ahra, ahrú ––
..Otraðu mig otraðu mig dóttraðu mig sjór
––mér síðasta bláa lónið innaní
....mér, sjórinn – Guðdómleg er
...undirstaðan allstaðar yfir Sjónum ––
..........Við ræðum rými og drífum
....okkur – Leyf engum munni
.......að gleypa hafið – Gavril ––
......Gavró – Cherson Kínverski
........og Gamli Fingurnagla sjór – Ertu
..........með suð í eyrunum? Deyjari, dí?
............Er Hreinn þú reynir að
..........................faðma mig
.....Þreytandi gamli sjór, ertu ekki orðinn dauð-
.....þreyttur á öllum þessum merde?
..Þessu eilífa búmm búmm
og sandgöngum – þið fólk
....grámósku grjótabelti héðan til Fuegie
....og leiðist ykkur aldrei? Eða örvæntið
....eins og þýskir loddarar?
....Bara niðurdrepandi niðurbarningur og græna
........á þokulegnum nóttum – þokan er hluti
....af okkur ––
..........Ég veit, en eins þreyttur
.......og ég get orðið af að hlusta á þessa
........kjánalegu konungdýrð ––
..........Basho
.........Lao!..
..........Popp!
..............Hver er þessi fiskur
........sem hvílist ósokkinn? Særðu fram
.........Hawaiískan hvirfilbyl mölbrjóttu hann
.........við þetta grjót – Við gerum hlaup úr þér,
............hlaupkenndi maður, sýnum þér upprunalegt
............hlaup sjávarins – Konungur
....................Sjávarins.
Var aldrei Einvaldur nokkur írskur að kyni?
......Sástu írska hafið?
...Græna vinda á lerkivínviði––
Joyce – James – Sissj ––
...Sjó – Sssssss – Sjá
–––Varash
––– mnavash la vache
.....écriture – í raun segir
sjórinn fátt ––
...............Jeminn, hún,
flöstruð, togar, leiddi menn á villi
....götur, Ódysseif og alla þá
.......fagurhöfða moína ––
...Terrplassk, og munurinn, maður
......minn! Lítil hvít
........ljósglæta!
.Hárið vafið höndum
...Penelope skipa-
...þefari – Hirðmenn í
...Gervi Telemakkusar
....drópedari drópedarískt
........kvikindi – eða ––
......Frankagull gárar
......neðansjávarlækinn
þar sem fiskur fiskur fyrir
.....fiskimenn – Saltkex
...hressa blauta suðurlendinga
......gamalla portúgalskra bæna
..........‘terallt samanflækt, breytt,
salt og dropi sandur
....og þari og vatn heilar
.......samanflækt – Rottur
....gamalla öskurapa frá Feneyjum
.......Ariel Calibanned
..........til Rómshafnar ––
Páá – stafaðu ––
.........Talaðu þú parlari
......í þessari parlor móður
..........minnar, þurrkaðu af
........skónum áður en þú
...........kemur inn, þakkaðu svo
......þokulegnu tunglinu
...Vertu hvatvís, Topahta
.....fitunnar – við grágerum
.......yður rós – Morgunsins
.......skriðdýr úr forneskju sér
..........fugl fleygsýnis
......deyja tístandi gulan
..efri góminn! Hve sæt
.......er jörðin, æpir sandur!
...........Nema þegar kútveltur
..búmm!
...........Ó við bíðum líka
eftir himnum – allt í
......Einu––
.............Allt er þar
í sanngirni og sjón
Nú skal ég skola
......gamla Pavia-hérað niður
.....og pakka saman saltinu mínu
..........til Annaðhvortbyggðar––
...........Antík Klettabelti
...........eiga enga rós
............sem morguninn hefur séð
.stelling blýarans –
....Búmm dí búmm dei
......sjórinn er ég ––
........Við erum sjórinn ––
........Hann er ekki allur snjór ––
Við skolum burt Fúsíjama
......brátt, og slípum
bak fuglaþrjóta ––
...Við hæjum bassj
..grjót – akk–
.......Langt stutt ––
.......Lágt og létt ––
.......Vindur og ótal frosnir
...bossar og lukkugrjót––
....Rappaport ––
.Endymion þú flækti
sveimhugi elskaðu læri mitt
..–– Rós, af Shelley,
...Rós, Ó duftker!
......Gónd duftker í fiskauga
........Cincosjór Chicosjórinn
........Magellanhöfðasjór
.....–– Hvaða auglýsingaýkjur
.......hliðarraunveruleik gerði hann
beygði sjávarlegt geitarskegg bítnikkans
yfir gömul geitarhandrit
til að finna hinna hliðina á Flötu?
......Sérðu í kring, sérðu endann á mér?
Kringlótta risastóra svefnhebbeggi?
.......Opp holu hellir og shwrul ––
......sand og salt og hár augu
–– nógu kraftmikið til að
láta kaffi vaxa í hári þér ––
...Hvers plantekru náði Neptúnus?
.......Hans Atlasar enn þar niðri,
.........Hesperids með fæturna, Surs með slydduna,
........Fingurgómur Írska Hafsins
......og Cornwall já hans sálar
........svefnhebbeggi
Rennur – Rennur – plopp
.....er dossj – Þetta andvarp gamalla lærdóma
.....hátt við hlið mér – Grófar
........gamlar hendur hafa spilað út
..........aðalsætterni, við höfum sökkt fleiri skipum
..........en dreymarinn fær nokkurntímann séð
– Brennur – Brennur – Heimurinn
......brennur og þarf vaaatn
– Ég skal eignast dótturættir
....ætt’að, sjáðu til ––
........Rennur, Rennur, Ég ––
...................Naríur – Naríur ––
........þessi fornu dálæti eru
............svo stelpandi – þú hefur aldrei séð
..........hafmeyjur í raunhafi mínu
–– Þú hefur aldrei séð kynlaus börn
...með Konungleg brjóst ––
......Konan mín – Konan mín ––
......Nafn hennar er Ó svo rosalega
.........................ljúfa lífið
Konungdæmi ljóta lífsins þar sem
við skiljum í sundur te, er sjávar
....síðu Ég ––
...... Josh – kúff – patra
....Ææ íí mó pássj ––
Ssst – Komdu og lestu mig ––
....Dónalega póstkort – pörupiltasjór ––
......Karassj þitt nafn –?
....Viltu synda, sökkva eða synda?
....Suðar aftur í eyrunum?
......Sjór víbrar takt
....brotið setur af stað hellis
.....húkari blístrar blástra
....hundseyrun aftur á bak – til sjávar ––
......Arííí ––
............Öfunundar Napóleon nada ––
Nada
.....Plútó étur sjóinn ––
......Hendur krosslagðar af sjónum ––
......‘On est tous caches, mange
....le silence, ‘ disent les poissons de la
.....mer – Aa Mar – Gott
...Thalatta – Merde – Marde
...de mer – Mu mer – Gerru ðvott ––
....Hafið er móðirin ––
....Je ne suis pas mauvaise quand j’suis
....tranquille – dans les tempêtes
..je’cries! Comme une folle!
...j’mange, j’arrache toutes!
.....Klukk – Klakk – Mjólk
.......Mæ! mæ! mæ! mæ!
.....segir vindur og blæs sandi ––
.........Plútó étur sjóinn ––
............Ami fara – da – che popp
..............Fara – Koma – Kark ––
............Gát – Kíí ter da vo
Kataketa páá! kekk kekk kekk!
Kwakijutl! Kikk!
...Sumar þessarfrekar sjóaraætur
fangaðar hyra tecere thaped
...þessi anandondak ram ma lat
kringlóttur við Krul til Patta Latta
...rottan anaakalkgervð
...romon tottek
......Kara VÚÚÚM
......frupp ––
.........Kaldir fætur? vaða – Hugur sár?
Sim – synd – Graður? – leggstu með sjónum!
....Væminn? Reyndu mig ––
............Ussens húktu ekki lengur hér
....hér förum við, ka va ra ta
...plássj, suss,
........og fleira, aftur, ke vlúúkk,
.......ke blómi og hér kemur
.........stóri Herra Trosh
..........––fleiri öldur á leiðinni,
..........hvert atkvæði vindasamt
......Þvottablaður á ný
paralarle – parallelandi
....parle pe Frelsarinn
..Viðsjárverður andi
húkir hér meikar það ekki
...í tóminu – Sjórinn
drekkir mér bara – Þessir orð
...eru tilgerð
...sjúks dauðleika ––
.....Við reynum að troða okkur slóð
....fullir sjálfstrausti, aðstoð
......berst aldrei nokkurntímann of snemma
........hvaðanæva að og sama hvað
.......ljúft himnaríkið hefur gefið
.......í skyn það myndi lofa okkur ––
En þessar öldur skelfa mig ––
ég mun deyja
...örvæntingafullur ––
...Vakna hvar?
....Á öðrum andardrætti lífsins
......er andrúmsloftið kærara
......kannski nær Himnaríki
–– Ó Paradís ––
Er sjórinn virkilega svo slæmur
.....Sendirðu menn
.hingað vegna þessara köldu trúða
og skrímslalegu veraldarætu?
.....hvers hljóð
.....ég hæði?
Guð ég neyðist til að trúa þig
....eða lifa í dauða!
....Muntu frelsa okkur – öll?
.......Bráðum eða strax?
....Sendu uppljómun
........niður í drukknandi heila okkar
–– Við erum aumkunarverð, Drottinn,
......við þurfum á hjálp þinni að halda!
.........Frelsaðu okkur, Kæri ––
..........(Frelsaðu sjálfan þig, Guð maður,
...........ha ha!)
......Ef þú værir Guð maður
myndirðu hafa stjórn á þessum öldum
...til að jæjaþá stöðva Tennyson
.....og meira að segja Tennyson
........er kær
............nú dauður
Láttu ljósinu það eftir
...skiptu þér af kvöldverðargerð,
.....og auga
.....einhvers auga – eiginkonu,
stelpu, vinar, dýrs
–– blóð lét drjúpa ––
...hann fyrir haf sitt,
......hann fyrir eld sinn,
..........þér fyrir þrá yðar
„Hafið rak mig á brott
..og æpti „Eltu þrá þína!”
–– Og sem ég hljóp inn dalinn
.bætti Það við einu lokaópi: –
............„Og hlæðu!” ”
..........Meira að segja sjórinn getur ekki stöðvað mig í að
.......skrifa eitthvað til að lesa í ellinni
–– Þetta er kort skammlífra sköpulaga,
sjórinn er skammlífastur –– Sjissj bara sjálft þarna ––
Hafandi skelft mig svona, Mar,
Ég ætla að úthúða hreysum þínum – þínum
....joðgrösum og slímgjörðum,
...meira að segja þurrkaður holur þari þinn
.......lyktar illa – þú lyktar illa uppúr og niðrúr ––
...Búmm –– Hafðu þetta, kvikindi ––
..Litli fiskibáturinn frá Monterey
rennur niðreftir heim 15 mílur eftir,
......verður heima hjá steiktum fiski og bjór fyrir fimm ––
......Hann leiðir sjóinn sínar fuglaslóðir ––
........–– Silfurmissir að eilífu útávið
–– Frá bláum himni mannsbrúa
til þykkra velgjuskýja sjómiðstöðvar
..hrúgu – í grámann ––
...Sumir drengir kalla það fallbyssubláan
.....eða gráan, en ég kalla það
...Borgarastríð Grjótanna
––Grjót breytastí loft, grjót breytastí vatn,
......og grjótagrjót ––
Kara tavira, mnash rokna partí
–– púúsj l’abas – krúúúsj
..L’a haut –– Plassj au pied––
.....Pííííí – Rolle testar boulles––
........Manche d’la rache ––
..........Fagri konungurinn ber sigur úr býtum
............yfir búúmm söngfuglshöfði ––
........‘Crache tes idées,’ hræktu hugmyndum þínum,
......segir hafið, við mig, mjögsvo
..............við eig and i
................Pss! pss! pss!
..............Ps! stelpa þarninni!
..............Rauðskóasori, augu gamalla
..........seiðkarla, táneglur lafandi niður
..............í tunnu gamals kvartilostar
................sem hollendingur gleymd’að éta þetta
..............................................................ofviðri
..............................................................nítjánhundruð O
................................................................sextán ––
...........Þegar hann var tundurskeytaður af fallbyssubátnum
...........Pedro í dali
..hinna milljón greiðslna?
Þegar Magellan rangeygður
..át amazóníska fætur ––
Og, Ah, þegar Kólombó sigld’yfir!
..Þegar Drake sir frankeraði öldurnar
.....með fóðrun bláskaða
.........myrkurs – stútaði sínum öláttar
......geymi framundir bómunni,
....hýsti saman allar hugsanir um Eirík
.........Rauða uppátækjasaman prakkara Grænlands
.....og smið grjótmykju í New
........Port – Ný – og þó –
.....Oldport Indíána Fiskhaus ––
.....Oldport Tattú Kwakijutl Höfuðstólpi
..........tabú pottaska Cojotl pottklinka?
Gamla Frumstæða Columbia. ––
.Nefnd eftir Kólum búss?
....Nafn fyrir Aruggio Vesmarica ––
.......Ar! – Or! – Da!
.........Hvað með Varrazano?
...Hann sigldi utan! ––
............Hann Verrazano zigldi utan og við
......statenuðum Eyju hans inná djúpinu
inná slengjunni ––
..............Rotnaði Veggómið?
....Syndarar lygarar góðmenni allir
..sökkva vatnssynda drekka nektar
.....Neptúnusar Zal sotat ––
...Zal sotate nafn fyrir crota?
.Crota ta crotte, þú kemur ekki til með
að finna (Jesús Kristna!)
neina þurra kúka hér að neðan ––
.......Akkurekki?
..........Brotnaðu á þessuarna grjóti
.......hráslegna grjóti með þínum nautalundartönnum
.........og sjáðu – Fyrir þig, hlýjuna,
...........hjartað, hárlokkinn ––
...............Fyrir mig, fyrir okkur, hafið,
...............morð tímans með því að éta
................lostafullar sprungur vara nærstu alda
..................á eilífðum söndugs listfengis
.....................þar til ekkert er eftir nema elli
......................nýmorgunn upphafs sársauki
....................fyrirsætna við
......................ófæddan
..........................fugl
.......................enn ósnertra rósa ––
...Með illgresum rósir þínar,
sandkröbbum niðsöngvarar þínir?
.Með suðurum í sjónum!
....Með hlaupurum í djúpinu!
..Þetta Veldissprottna Ossj, þessi viðfeðmi fótur
........spannar grjót U.S. til grjóts
.....Ja Pan, þessi ástöðugi
.....rúllari sem ráfar allt,
..þessi klessari við þína blóðstokknu
......þurrtaðshurð, þessi munnur
.silfurhvítur þráir að halda yður,
.....þessi upprætir samviskna
....dómadagsþrá fyrir yður ––
....Engin mús hér inni en’n á sér
.......dálitla gleði – og
.......aftur á, eða oft, gjóður
........í gleði sinnar glaðnaði ––
..........Ó krúttlega krúttlega haf
............ég ––
..........Blautmetta! slakaðu Veldissprotanum niður!
........Aftur hefurðu þegið mig!
.....Andaðu joði okkar, saurugur drykkur þinn,
.örmagnastu við fætur okkar, slepptu
....svip þínum færðu hann í sjóinn,
.fljóttu þaraði blauti Adonais
.....þráir þig – og Shelley þrír,
.........það gerir þrír – brenndu í salti
....með hægð flest breytist ––
..Okkur hefur ekkert gengið með elífðina
..eftir milljarð ára tilraunir ––
......eitt sandkorn inniheldur
....3 þúsund gleðiheima ––
....að ekki sé minnst á mig sjálfan ––
............Ah sjór
..........Ah si – Ah svo
.skjóttu – skjálfðu – mixaðu ––
....ha veltu – tara – ta ta ––
.kurlurk – Kæjass – Kíí ––
Perlur perlur í gulu Vestrinu
–– Gulur himinn til Kína ––
Kyrrahaf nefndum við hér
...vatn líkt og alltaf mætir
...vatni – Kyrra Kyrrahaf
.....Kyrra Kranahaf – gerúmm ––
gedássj – gakka – gaja––
.....Tatha – gata – mana ––
.....Hvaða segl brúkaði gamli bikkhusinn?
......Dikkhus? Dikkhus!
..Hvaða fleka póstsendi Móse
..til að flugsetja dúfustólpann?
...Hverju bjargaði Svartiðu
....frá Kidd plankanum?
Hvaða Förupadda hér?
.Sjáða! Sjááááááááááááá
.ááááá – kara ––
......Barningsmenn út jar ––
Big Sur kallast þessi sandur
....þessi grjót þessi lækur?
....Raton-Gil með nafni hellir
....Sléttuúlfalaufi og gömlum beinum Pomo-indíána
og gömlu ryki af Tomahawk-öxum
......oní stangveitt gin þitt –
........Saltgin mitt mun bjarga
...Taylorum – saumandi í herberginu
...................................að neðan ––
Saumandi þaradruslur á fjallgöngukappa
....í mjólkurlitri botnleðjunni ––
......Krosssauma án
........nokkurs vafa – Sartan
....erum við í VerðlaunaSigri
í þessu saltstríði með yður
og yðar þér hlaupkennda jinki!
.....Sjá Ó sjór hér nefndur
..........Kyrrahaf!
...............Taki!
Mín gullna tóma sál mun
lifa lengur en saltar syllur þínar
–– Gluggar hlaupauga míns
og fiskhöfuðskítur lítur út á yður,
...ristur, með vindlakjaft,
dálitla fyrirlitningu ––
–– þú drífur yður að borða
...mig – Bjartan yfirlitum
......og lúinn, þeldégnú––
Arra! Arúú!
...Ger der va ––
....Þöglar kjánaborgir í sjónum
..eiga börn sem leika með pappa
mauk við einjarda gamlan Englending
........býflugnaplötur sleiptar útumallt með sora
.............mannkynssagnanna að neðan ––
Ekkert ofviðri jafn stillt og hræðilegt
............og ofviðri innrameð ––
Seiðkarlakúl! Búddalönd
......og Búddahöf!
.....Hvaða segl Maudgalyayana notaði
.........veit hann einn að segja
......en var drebinn af öskuröpum
...æpandi niður klettahamrana
...............„Förum heim!
......................Strax!”
.–– yfirgefðu smjörlíkismaskaða djama
....Maudgalayayana var myrtur af sjónum ––
........En sjórinn ekki segja frá ––
..........Sjórinn ekki myrða ––
........Sjóróasamir fræðimenn
..............ætt’að vita það
....................eða
..........setjast aftur á Skólabekk
.....Heyra þar mótor hafsins?
...Finna splassrsjið frá honum?
.Sex kjánamargfætlur hér, Machree ––
..........Ah Ratatatatatat ––
vélbyssuhafið, taktlegnir
..dansleikir úr þér leka saman
..við mjúkar eplarósir
.....í þinni aðalsættuðu mjólkurhvolps
........tenórraust ––
....Túndurfen í lagi ílúííí –
........arrac’h – arrache ––
....Kamac’h – kóngur ––
......Kerarc’h Jevac’h ––
.....Tamana gaváá ––
.......Va – Vúúvla – Via ––
.........Mia – minn
............sjór
..............púú
.....Farvel, Sur ––
.....Sagðir ‘onum nokkurntímann
.....frá vatninu sem mætir vatni –?
Ó snúð’aftur til oturs––
.....Kjör – Kjör – Klerm
...Kerm – Körn – Kú – Ká ––
......Klink – Cac’h – Klokk––
........Klukk – Farkjöt sjór þarfnast
..........dess dýpis ég ‘f séð þig
..............Nóc’h
............nóu brátt
........í Gömlu Brittany
21.ágúst 1960
Kyrrahafið við Big Sur
Kalífornía
Jack Kerouac