Ida Börjel
Saga sem á sér trix
Danskar manneskjur eru rúnnaðar þyrstar manneskjur sem hafa ekki neitt á móti neinum hundum. Danskir hundar eru venjulegar verur með smáa flekki. Danski hundurinn lumar alltaf á trixi til að sýna á barnum. Ég er danski bareigandinn og mín setustofa er allra. Spænsku hundarnir eru latar verur með of mikla sól yfir sér. Sænskir hundar eru burstaðar grannar áhyggjufullar verur sem eiga sér langan og flókinn uppruna. Sænsku hundaeigendurnir tala alltaf til þess að bera saman upprunann og ástand feldanna. Þýski hundurinn lumar ekki á neinu trixi til að sýna á barnum. Danskir hundaeigendur eru hlýjar þyrstar manneskjur sem deila hugsunum og drykkjum á barnum. Þeir austurrísku myndu aldrei deila hugsun með ferfættum vinum sínum. Danski hundurinn þarfnast engrar ólar. Danskir hundar elta eigendur sína eins og eigandi eltir hundinn á barinn. Sænskir barir eru sótthreinsaðir snyrtilegir staðir með teinastólum og útvatnaðri bandarískri tónlist. Danski pöbbinn er notalegur dimmur staður með skemmtilegum límmiðum og plakötum. Danska konan mín kemur inn. Hún er hlý geislandi litrík vera með góðan heilbrigðan hlátur. Austurríska konan, portúgalska konan og finnska konan eru ekki með neinn hlátur sem vert er að nefna. Danska konan kemur geislandi og litrík inn á barinn minn. Hlátur hennar er sterk góð hollusta. Danska konan kemur aðvífandi með fínan þorsta til að taka til höndunum með. Litli rúnnaði danski hundurinn sýnir henni trixið sitt við borðið á barnum mínum. Danska konan hlær og lyftir glasi sínu fyrir öllum sem sjá hana og heyra.
Ida Börjel