Færeyjar

Ég er að fara til Færeyja á eftir. Á nordískt semínar. Eitt sinn bjó ég í Færeyjum í hálft ár, vann í skipasmíðastöð, drakk á Mími og orti lýrísk ljóð. Ég hef komið þangað tvisvar síðan, fyrst með Grími Hákonar og Varða þegar þeir voru að gera Varði Goes Europe, og síðan til að lesa á G!-festival fyrir nokkrum árum. Í seinna skiptið náði ég ekki einu sinni inn til Tórshavnar, en verð nú í lúxus-gistingu á Hótel Tórshavn fyrir ofan pizzastaðinn sem Melli vinur minn vann á.

Þetta verður fínt.

Ég minni annars bara á ljóðaþýðingasafnið.

Tags:

Svaraðu kallinu!