Bruce Andrews

Ljóstu mig, elding!

1.

Vibora!
Montrass!
barnalærdómur [barnatrú]
gullna gervilyf
mjólkurvetur, Vetrarbrautin
þjálfar hógværð augans
dreymna dásömun
Litríks Hafs
utan við tíma
vida
strokið og gælt
divertida
fangi töfralampans
Vinsamlegast fargið þessu bréfi

A.2.

Leyfðu nóttinni ná fram vilja sínum
í annars stað
hringsóla blindandi
í hvítbrennandi dýrkunargervi
& leggja álög
venjulegur búningur næturinnar
eltir mig líkt og glennt skæri
í eigu arflausra Evudætra
lífvana og ástlausra
til að leggja á minnið
beinhvíta skugga
útivistarbjöllur
tunglmyrkva
beiska pilluna
aftur á einstigið

A.3.

hengdu örlög
hjáleiðir skynjunar
kreplitar mea culpur
brúður Krists krafsar í vegg
hve langt
er höndin skrifuð undir
veröld lokuð framtíðinni
varir prísund reykelsi
auto de fe
fyrirmyndar fóstur
ó-kenndu mína atburðar
vömb, bókasafn, kuðunga
hús bergmála
segul drauga
boðun trúarinnar
þú án þín
þetta langt
& ekki lengra

A.4.

Ennfremur ræð ég ekki
stýrt að þessari kátu gröf
eftirlíking eftirlíkingarinnar
ósýnilegur ég, versta
kona í heimi, Sor Juana Inés de la Cruz
skurðgyðja
vélmenni
eða martröð –
vildi að þú værir hér
einn sauður til viðbótar í hjörð þína
meðan netið lokast um
kyrrláta ókynja jómfrú
þungað ský
líksmurt
fer huldu höfði
sjálfselskt
snaran úr talnabandi
jarðvarmaspjátrungur

B.1.

Hin Helga Sögn
coincidentia oppositorum
hvernig ofbeldisdýrkandi
leður bítur
öskju Pandóru
samfagnaðu mér
stoppaðu stamaðu
freyddu löðri
reyndu að hopa ekki
hjartalaga hörpudiskur
hóflaus af
harmsins
ákafa, íkveikju
áhættu líkar
ég, síst verðugur
höfugs vanillu
reyks rennur um greipar hennar.

B.2.

Ekki gleyma mér
oflátungslega sæt
alsæla hundeltir
hjartað óáreitt
kúrbítsblómstur
ögrandi
pan, mi bien
brúðumaki
kista bergmála
blekbytta
androgínu
breytt í leikfang
atkvæðin stjörnur
fylgja
diablo rómans
fjötrar vel festir
bleki, blökkum tárum
röku frelsi
holdsins silki
hjartað skorið frá

B.3.

Besta stálið verður að herða
í eldi
contra
eða amiga
afbrot –
iðrastu aldrei
ögraðu til snertingar
skekkju
poco
greiða
Olé
til að loco loca þig sjálfan
& líka kynmök
sætan skáldskap
auðsveipt holdið
snýr svo þétt upp á
ávallt ókunnugur
ást með eldfimu
bergmáli = rödd
flæðir yfir á hjörunum
til að þeyta súkkulaðið þar til freyðir
bál úr
skít
í svörtu bleki
í ósýnilegu bleki

B.4.

Það sem ég vildi ekki inn fyrir mínar varir
ef allir hlutar líkama míns væru
tungur
villancicos
lofthræðsla
púðurþykkur rómurinn
formar –
morðið þitt
yndi morðsins
án syndar –
sá syndina
vefa fjarstæðusilki úr þér
skynlausan vafasaman vökva
húmor hafðu kjark til að stíga í veg fyrir
spurningarmerkið
settir úr skorðum
frummyndasigrar

C.1.

snúðu tíma
skopparakringlum
samkvæmið & klefinn
Katrínarhjóls
sektarlausa gleði
smásjár fianchetto
vor frú af Guadalupe
sver við forhúð Krists
vekið hina dauðu & giftið þá
hinum afþekktu
gegnum sjónauka hennar
tíundu músu
fyrir þig sjálfan
sem gerir það sem þú átt ekki að gera

C.2.

stjörnur lítil orð
gróðurhúsagriplur
jaðarkringumstæður
átóðir kalkúnar
Guadalúpínskrar
vinkonu að eilífu
hendur þínar þýða mig
vamos, muchacha
no solo
segðu þú sért ekki mín
tvö höfuð á einum hálsi
það sem við náum að kroppa
af krafti sagnarinnar
að vona er sárt

C.3.

vertu þitt eigið líffæri
göldrótt torg
draga aukanúmer spegils í efa
alfræðiorðabækur, sólsjár, stjörnusjár, kviksjár
brjálun að vona
af fúsum og frjálsum vilja
frelsi
líflegur jafningi
í hverri
í hverri
Látum sem ég sé hommi
spennandi jöfn uppreisn
gleður fyrirskipun
með hvaða rökum?
hvað er það?
hvernig er það?
alltaf óboðinn
Íkarus
mannlegur, alltof mannlegur
skapraunar þér
ástin möguleg
með heykvísl
þær drepa bara eigendur sínar.

C.4.

Tjarnarkólfur Liljur
engin ásthelti
hjartalaga munnur
fáðu þér endilega meira súkkulaði
gagnsæjar líkingar stjórnmálamanna
óendurgoldnar
gleypi eggjaskurnina
til að friða óvininn
skrásetningarhjartað
furðuverkið er hljóð
ljóssins api
stríðsmaður þráar
tékkaðáðí
augun geta heyrt
hvernig heimurinn er gerður
snupraður –
haltu fast í hvert orð
hvað get ég gert án þess að óttast?
til að kunngera eldinn –
„heimurinn var fylltur birtu,
og ég vaknaði”

Bruce Andrews

Tags: , , , ,

Svaraðu kallinu!