bp Nichol
Gorg, spæjarasaga
maður gengur inn í herbergi. það er lík á gólfinu. maðurinn hefur verið skotinn í gegnum gagnaugað kúlan fór inn með 45 gráðu halla fyrir ofan augun & fór næstum því út um hvirfilinn. maðurinn gengur ekki út úr herberginu. líkið stendur upp & kynnir sig. seinna verður veisla. þér verður ekki boðið & ferð í fýlu út í horn og setur upp skeifu. það er byssa á gluggakistunni. þú setur upp talíu sem hjálpar þér að geta togað í gikkinn á meðan þú miðar byssunni milli augnanna & heldur við hana með fótunum. maður gengur inn á þig. þú liggur á gólfinu dauður. þú hefur verið skotinn í gegnum gagnaugað kúlan fór næstum út um hvirfilinn. þú stendur upp & kynnir þig. maðurinn liggur á gólfinu & þú skýtur hann á milli augnanna kúlan gatar gagnaugað & fer gegnum höfuðkúpuna í gólfið. þú snýrð aftur í veisluna. maðurinn biður þig að fara því þér var ekki boðið. þú tekur eftir ókunnugum manni í dyragættinni sem dregur upp byssu og skýtur þig milli augnanna. þið kynnið hvor annan & leggist niður. gestgjafinn er kurteis en ákveðinn og biður ykkur báða að fara. á þessum tímapunkti gengur inn maður & kynnir sig. þið liggið á gólfinu & getið ekki séð hann. gestgjafinn virðist ekki þekkja hann & maðurinn fer. veislunni lýkur & herbergið er tómt. maðurinn tekur upp líkið & gengur út.
bp Nichol