Bill Holm er látinn
Að sleppa taki á því sem ekki er hægt að halda aftur af
Látum þá dauðu fara núna,
reipið í vatninu,
styrktarokinn á klettinum
gagnast þeim ekkert lengur.
Látum þá falla, sökkva, fara
burt, verða ósýnilega, einsog
þeir reyndu svo mikið til
í dauða sínum. Við þurftum
að angra þá með því sem við
kölluðum hjálp.
Það erum við sem erum
hjálpar þurfi.
Hinir deyjandi vinna að sínu
af natni, einmitt á réttum hraða,
stundum jafnvel með dálítilli
ánægju. Svo við skulum hafa
hægt um okkur. Látum þá fara.
Æfum okkar eigin söngva.
Núna.
Bill Holm
Þýðing: Gyrðir Elíasson, úr bókinni Flautuleikur álengdar.