Archive for February, 2009
List og pólitík – niðurstaða
Bill Holm er látinn
Að sleppa taki á því sem ekki er hægt að halda aftur af Látum þá dauðu fara núna, reipið í vatninu, styrktarokinn á klettinum gagnast þeim ekkert lengur. Látum þá falla, sökkva, fara burt, verða ósýnilega, einsog þeir reyndu svo mikið til í dauða sínum. Við þurftum að angra þá með því sem við... »
Ljóðgátt
Hér hefur sumsé opnast ljóðgátt. Dálítið hæg, en samt hjálpleg. Jón Örn Loðmfjörð fær bestu þakkir fyrir aðstoðina, ást og kossa. »
Passíusálmarnir
Fyrir nokkrum páskum síðan las ég Passíusálmana í Ísafjarðarkirkju ásamt þeim Hlyni Þór Magnússyni, blaðamanni og safnstjóra, og Elfari Loga Hannessyni, leikara og Erni Elíasi Guðmundssyni (Mugison) tónlistarmanni. Að einhverju leyti er það auðvitað kristilegur gjörningur að lesa Passíusálmana, þó mín persónulega tenging við þá sé auðvitað meira til kominn af áhuga á skáldskapnum.... »
Við borgum ekki (aftur)
Mér finnst fara of lítið fyrir einu mikilvægu atriði í yfirstandandi umræðum um hrun og ábyrgð og allt það: Ef við ætlum að halda áfram að reka kapítalískt hagkerfi, þá verður ekki hægt að koma í veg fyrir að hrun eigi sér stað af og til. Þannig er það bara – hefur ekki verið... »
Etnópóesía: Joik
Ég var í Færeyjum á dögunum á semínari um smásagnaskrif fyrir unglinga. Þar voru nokkrir indælir Samar – meðal annars Inga Ravna Eira, sem flutti þátttakendum hljóðaljóð samansett úr hinum ýmsustu samísku orðum sem öll áttu það sameiginlegt að vera heiti á réttum sem gerðir eru úr ólíkum hlutum hreindýrsþarma. Sannkölluð og yndisleg etnópóesía.... »
Eldjárn
Það kemur kannski engum á óvart, en ég held mikið upp á Þórarinn Eldjárn, og þá sérílagi barnaljóðin sem einkennast af allri þeirri gleði sem ég vildi að önnur ljóð hefðu ævinlega til að bera. Að lesa ljóðlist er dálítið undarleg iðja, þar sem flest af því sem ég les finnst mér kannski alls... »
Malavísk ljóðlist
Malavísk ljóðagerð er, miðað við aðstæður, hreint ótrúleg. Það sem þar er best gert er algjörlega samanburðarhæft við það besta á alþjóðlegum vettvangi. Því þarf enginn að halda að þar, eða annarsstaðar í hinum svokallaða þriðja heimi, sé ekkert að sækja annað en fátækt, sjúkdóma og vannærð börn. Hér er hvorki staður né stund... »
Gylfaginning
svo gnóglega þann málm er gull heitir, að öll búsgögn og öll reiðigögn höfðu þeir af gulli, og er sú öld kölluð gullaldur, áður en spilltist af tilkomu kvennanna. Úr Gylfaginningu. »