Ulf Karl Olov Nilsson
Án titils
Þér finnst allt vont en það á eftir að versna.
Þú heldur að þú sért gáfaður en það ertu ekki.
Þú heldur að þú sért áhugaverður en þú ert leiðinlegur.
Þú heldur að þú sért sætur en þú ert ljótur.
Þú heldur að þú sért ljúfur en þú ert grimmur.
Þú segist vera lagður í einelti en það ert þú sem leggur aðra í einelti.
Þú heldur að þú kunnir frönsku en þú kannt hana ekki.
Þú heldur að þú þroskist og verðir betri en þú lærir ekki neitt.
Þú segist vera ástfanginn en þú virkar ekki ástfanginn.
Þú heldur að þú eigir eftir að hressa þig við en það verður einmitt hinsegin.
Þú segist elska börnin þín en það er bara kjaftæði.
Þú segist ætla að taka þér frí en þú átt enga frídaga eftir.
Þú segir að þér sé hótað en það ert þú sjálfur sem hótar.
Þú vonar að þú eigir eftir að þéna meiri peninga seinna meir en við vitum nú öll hvernig fer með það.
Þér finnst náttúran óhrein en allt á eftir að verða ennþá sóðalegra.
Þér finnst veröldin vera óréttlát en það er ekkert í samanburði við hvernig hún verður.
Þér finnst gatið á ósonlaginu vera stórt en það á eftir að verða ennþá stærra.
Þú heldur að þú sért gott skáld en það ertu ekki.
Þú segir að þú sért graður en það er bara ímyndun.
Þér finnst veðrið vera vont en það verður verra.
Þér finnst að nú sé mikill hryllingur og stríð í gangi en þetta er bara byrjunin.
Þér finnst þú ekki vera tiltakanlega feitur en það ertu.
Þú segist vera hamingjusamur en þú virkar ekki hamingjusamur.
Þú heldur að þú lifir en þú ert dauður.
Þú heldur að fólk fíli þig en það gerir það ekki.
Þú heldur að þú sért vel metinn starfskraftur en satt að segja ertu einskis virði.
Þú segir að aðrir séu árásargjarnir en það ert þú sem ert árásargjarn.
Þú heldur að þú sért kúl og kreisí en í sanni ertu feik.
Þú heldur að þú sért lærður og vitur og skrifir vel en í raun ertu fullkomlega óáhugaverður.
Ulf Karl Olov Nilsson
Þessi maður er uppáhaldið mitt…
Er búið að gefa út hljóðsnældu? veistu?
hmmm?
Anna Marín
Það fylgir diskur með bókinni Synopsis. Mæli með honum.