Paal Bjelke Andersen
ÍSLAND
31. desember 1999
Veröldin víð og breið og landið og landið og landið og landið og Ísland og landið og landið og sveitir og héruð og fjórðungar og landið og Danmörk og Rússland og Ísland og Ísland og umheimurinn og önnur lönd og ekki eitt land heldur mörg og Ísland og ekki eitt land heldur mörg og Danmörk og sambandsríki Evrópu og við Íslendingar ráðum nú yfir sjöhundruð þúsund ferkílómetra hafsvæði.
31. desember 2000
Ísland og landið og erlendis og sjór og land og lýðveldið og Háskóli Íslands og Ísland og sömu þróunar gætir víðast hvar annars staðar í heiminum
31. desember 2001
Jörðin og himnaríki og sker í úfnu hafi og norðurálfa og útvík heimsins og landið og þetta hrjóstruga harðbýla land og Ísland og aðrar þjóðir og erlendis og sólin og Ísland og hús skáldsins, Gljúfrasteinn og Mosfellsbær og landið kalda sem fóstraði Björk og landið og við Íslendingar heimtum ekki forystusæti á alþjóðavettvangi, þegar úrslitum er ráðið, er varða margar þjóðir, heilar álfur eða jafnvel alla heimsbyggðina.
31. desember 2002.
Sólin og myrkrið og orkuboltinn mikli og Ísland og Harvard háskóli og Ísland og Ísland og Ísland og Bandaríkin og Þýskaland og landið og ættjörðin og landið og landið og til þess að Ísland hafi gagn af því.
31. desember 2003
Sólin og þetta kalda land og hin ystu höf og Ísland og sléttur Norður-Ameríku og gamla Landshöfðingjahúsið við Bakarabrekku og þetta land og Sigurhæðir og Ísland og Ísland og Kvosin og Kaupmannahöfn og landið og náttúra landsins og ríkið og landið og klakalandið og þú, sem fyrr með ást og orku kunnir efla mentir þessa klakalands.
31. desember 2004
Ísland og öll Norðurálfan og öll Vesturlönd og heimurinn og erlendir markaðir og landið og vestrænar þjóðir og Sri Lanka og Suður-Asía og landið okkar og landið og lýðveldið og veraldir og til vaxandi Íslands vor hjartaljóð yrkjast.
31. desember 2005
Önnur lönd og nágrannaríkin og suðurhluti Bandaríkjanna og New Orleans og Pakistan og suðurhluti Asíu og heimurinn og Asía og Pakistan og hjari veraldar og Norðurslóðir og heimsbyggðin og norðrið og norðrið og Norðurslóðir og hafið og norðurslóðir og heimskautasvæðið og norðurslóðir og heimsbyggðin og Ísafjörður og landið og þjóðgarðurinn á Þingvöllum og Ísland og Þingvellir og Valhöll og Þingvellir við Öxará og landið og grannríki okkar og Þingvellir og heimurinn hlær.
31. desember 2006
Sólin og aðrir staðir og önnur lönd og heima á Fróni og hér á landi og löndin í kringum okkur og okkar strendur og Evrópa og landið og vestrið og Bandaríkin og norðanvert Atlantshafið og Ísland og landið og Kaupmannahöfn og suðrið sæla og land Ísa og fósturjörðin og Evrópa og fósturjörðin og kveðja Jónasar heim til Íslands.
Paal Bjelke Andersen
—
Ljóð Paals Bjelke Andersen, Noregur, Danmörk, Finnland og Ísland eru tekin úr stærra verkefni þar sem unnið er með áramótaræður forsætisráðherra landanna. Svíþjóð vantar í hópinn sem stendur, því þar er engin forsætisráðherraræða á áramótum. Fyrstu þrjú ljóðin eru þýdd hefðbundið, en það fjórða, Ísland, er þýtt aðferðarfræðilega og verður svo þýtt aftur á norsku fyrir bók Paals Bjelke.