Nihil Obstat

Nihil Obstat
4. júlí 2003
Blár heiður himinn (það er ekki að fara að hefjast stríð)
Höfug næturþögn (það er ekki að fara að hefjast stríð)
Skattalækkanir (það er ekki að fara að hefjast stríð)
Markateigurinn Nýhil kynnir rogginn fyrstu heiðvirðu ljóðabók nýs árþúsunds: Nihil obstat, eftir Eirík Örn Norðdahl.
Algjörlega sinnulaus um markalínur textategunda, forma og tungumála makar Eiríkur sig við samtímann, glottir við tönn og hlær en stynur ekki:
Ég eyddi heilum degi í leit að siðferðilegri vandlætingu. Ég fann það skemmtilegasta fyrst. Snemma morguns sló ég „I hope that you burn in hell“ inn í leitarvélina, í gæsalöppum nákvæmninnar vegna og fékk upp fyrst af öllu efst á lista http://www.nukeafghanistan.net/ og slagorðið spreading love through the middle-east … one megaton at a time. Ég hlæ meðan ég fullvissa ykkur: Þessu fólki er alvara.
Umsagnir
„Form ljóðanna er breytanlegt og höfundur er stöðugt að prófa nýjar skáldskaparleiðir. Áhrifavaldar eru margir sem og viðfangsefnin. Allt frá T.S. Eliot til Ísaks Harðarsonar. Í bókinni má finna orðræðu ný-raunsæista, súrrealista, Beat-skálda, módernista og póst-módernista svo eitthvað sé nefnt. […]En bókin er langt frá því að vera einhver samtíningur áhrifa og viðfanga heldur mætti frekar lýsa henni sem afar póst-módernískri súpu svo ekki sé fastara að orði kveðið. […] Skáldið sem vísindamaður þar sem orðin eru sett undir smásjá. Skáldið á tímum tæknialdar.“
Höskuldur Kári – ljóð.is
„Það er einhver keyrsla þarna sem ekki er annað hægt en að fylgja eftir.“
Úlfhildur Dagsdóttir – Bókmenntavefnum