La Guerre
III
stórleiki fallbyssunnar
er haglegur,
en ég hef séð
dauðans snjöllu gríðarstóru rödd
sem felur sig í viðkvæmni
draumsóleyja. . . .
ég segi að stundum
á þessar löngu skrafhreifnu skepnur
séu lagðir hnefar geypilegri þagnar.
Ég hef séð alla þögnina
fulla af fjörugum hljóðlátum strákum
í Roupy
hef ég séð
milli stórskotahríða,
nóttina mæla af vörum blómlegar ósegjandi stúlkur.
E. E. Cummings
Þýðing: EÖN