Ida Börjel
NEYTENDALÖGIN
juris lyrik
Fyrstu ákvarðanir
1a § Það er ég sem ræð.
1b § Legis virtus haec est: imperare,
vetare, permittere, punire.
1c § Máttur laganna felst í eftirfarandi: að skipa fyrir,
banna, leyfa, refsa.
2a § Neytendalögin eru í meginatriðum
þvingandi lög.
2b § Þau ná yfir kaup á lausum hlutum sem
seljanda tekst að selja kaupenda í
skiptum fyrir monninga hennar.
Neytendalögin – NeytL.
Góð lög. Fordæmisgefandi. Þau ná yfir okkur
mannfólkið. Þau ná yfir lífið sjálft.
Þessi málsgrein á við um seljanda:
manneskja eða lögaðili sem stundar viðskipti
til að ná markmiðum sem eiga sjálf í
innra sambandi við athafnir viðskiptalegs eðlis og hina
persónulegu þróun sjálfsins. Maður getur ekki
verið neinn sem ekki selur neitt. Allir eiga
eitthvað að selja (sjá neðar).
kaupandi:
manneskja af holdi og blóði sem
verslar fyrst og fremst til að ná markmiðum sem
eru ekki í samræmi við veruleikann fyrir sakir ákveðins
óöryggis sem erfitt er að festa hönd á.
Ein afleiðing viðskiptanna er sú að þau gera
veruleikann verulegri. Handfastari.
Gæludýr eru ekki kaupendur.
4a § Lögin ná einnig yfir framstillingu
á vöru sem stendur til að framleiða en hefur ekki verið
framleidd enn. Varan er þá til sem mynd í
bæklingi og í heila kaupandans. Í heila
seljandans myndast spegilmynd vörunnar úr peningum.
Ekki er vitað hvort að seljandinn áður fyrr, þar
sem hann nú sér peninga, sá móður sína. Myndin
nær þó aldrei heim og saman við
veruleikann. Myndir birtast í
tveimur víddum. Veruleikinn í þremur.
Myndin getur verið raunveruleg en þá aðeins sem mynd.
4b § Já. Myndin er staðreynd. Myndin af
vörunni er raunveruleg. Leikfangadýr eru ekki
úr olíu, eða plasti. Þau eru ímynduð úr
ást, líkt og í þeim finnist kjökrandi líf.
Flestir vita, og kaupandinn veit það líka
einhvers staðar, að þetta er tilbúningur,
þetta er eins og tölvuleikur, eins og
ölduvélin, eins og boxandi hjarta. Þetta
er blöff, ef tilbúningur er það að
blöffa. Ef að hús ætlar að láta eins og það
hafi vaxið upp úr jörðinni. Eins
og mannfólki á fæðingarstundu sinni
skolaði upp á ströndu.
Myndin er vafin í kaupandann. Þetta á að vera
viðburður.
4d § Kaupandinn veit að þetta er glýja,
það er glýjan sem hún ágirnist, ekki að gera
lífið raunverulegra, heldur að gera það dálítið
minna raunverulegt. Draumurinn.
Hið fjarstæða. Rósir.
4c § Kaupandinn er ekki á höttunum eftir sannleika,
heldur einhverju sem virkar.
Fyrrnefnt á ekki við þegar hið gagnstæða á við.
4f § Það er erfitt fyrir seljandann að vita hvernig
kaupandinn hugsar.
.
Afhending vörunnar, varan sótt
8b § Varan er afhent þegar hún er í
eigu kaupandans. Ef það gerist yfir afgreiðsluborð,
skuluð þið ganga úr skugga um, ef það er mögulegt, að báðir aðilar
samtímis og með opnum huga haldi í
vöruna áður en seljandinn sleppir takinu,
lágmarkið þann tíma sem varan er í lausu
lofti, á leið frá seljanda sínum, á leið til
kaupanda síns, því að þannig komist þið hjá
þeim vandræðum sem komið geta upp þegar varan
brotnar, fellur milli fingra, flýr eða
á annan máta eyðileggst eftir að
seljandinn hefur sleppt, áður en kaupandinn hefur
fangað.
.
Verð
10a § Vara verður að kosta eitthvað á einhverju
stigi framleiðsluferlisins. Hún má ekki kosta
ekki neitt og verð hennar má ekki vera óendanlega
hátt.
Seljandinn á að geta svarað spurningum.
.
Seinkanir
18a § Valkvíði.
18b § Skyndileg fátækt.
18c § Ást við fyrstu sýn.
.
Villa þegar kemur að frelsi (í stuttu máli)
48 § Andinn býr í holdinu. Andann hungrar í sitt.
………………..Seljandinn: Elskarðu mig?
………………..Kaupandinn: Ekki þessa bíræfni.
.
Réttindi og skyldur kaupandans
Kaupandi. Litli gullmoli!
86a § Kaupandinn og myrkursýn kaupandans.
………………..Kaupandinn: Ég sagði já við heildinni
………………..en nei í smáatriðunum. Ég vildi
………………..versla, en ég vissi ekki hvað ég var
………………..að kaupa.
87a § Hversu langt er kaupandinn tilbúinn að ganga?
87b § Að fá hana til að vilja draga úr sér tennurnar.
Glerungur í munninum, það er jú ógeðslegt.
Tennur eru hvassar; kaupandinn gæti byrjað að tyggja
sjálfan sig og valdið sér stórskaða.
Kaupandann verður að verja, líka frá sjálfum sér.
87c § Láttu draga úr þér tennurnar og skipta þeim út fyrir
skartgripi!
Fáðu ókeypis brjóstsykur í túlann á eftir!
Ida Börjel
[...] Nýlega endurskoðuð útgáfa af þýðingu á broti úr Neytendalögunum, sem birtist fyrst í bókinni Gáttir, sem Kári Páll Óskarsson ritstýrði og kom út hjá Nýhil fyrir síðustu ljóðahátíð. [...]