Hans Magnus Enzensberger

Í kennslubók til stúdentsprófs

Ekki lesa hetjuljóð, sonur sæll, lestu stundatöflur:
þær eru nákvæmari. Sléttu úr sjókortunum
áður en það er um seinan. Vertu á verði, ekki syngja.
Sá dagur kemur að þeir hamra yfirlýsingar sínar
aftur á dyrnar og auðkenna brjóst þeirra sem segja nei
með leynitákni. Lærðu að þekkjast ekki, lærðu meira en ég:
að skipta um lögheimili, vegabréf, andlit.
Vertu lunkinn við smásvik,
hversdagsins skítugu bjargráð. Dreifibréf
duga vel til að kveikja upp í eldinum,
stefnuskrár: til að búa um smjörið og salt
fyrir þá sem geta ekki varið sig. Þörf er á bræði og þolinmæði
til að blása innum lungu valdsins
fínu banvænu rykinu, möluðu
af þeim sem lært hafa margt,
sem eru nákvæmir, fyrir þig.

Hans Magnus Enzensberger

Tags: , ,

Svaraðu kallinu!