Eitur fyrir byrjendur

„Hegðun fólks sem hefur rétt sofið hjá í fyrsta skipti er eins misjöfn og mögulegar paranir þessara 6 milljarða sem búa á jörðinni.“
– Halldór, plöntuæta
Halldór og Herdís búa saman en hafa ekki kysst svo vitað sé. Þegar Herdís færir inn á heimilið varhugaverða pottaplöntu og kynjafræðinemann Högna tapar Halldór hæfileikanum til að fara úr húsi en fær því meiri áhuga á byrlun eiturs. Eitur fyrir byrjendur er skáldsaga sem fjallar á næman hátt um samlíf ungs fólks.
„Maður getur alltaf verið viss um að allt iðar af lífi í kringum Eirík … hver fruma laumar á ljóði, hver limur á sögu. Þessi saga kemur frá hjartanu.“ – Örn Elías Guðmundsson (Mugison)
Eitur fyrir byrjendur er önnur skáldsaga Eiríks Arnar Norðdahl (f. 1978), en hann hefur áður gefið út skáldsöguna Hugsjónadruslan og fjölda ljóðabóka og þýðinga.
Umsagnir
„Þetta er ekki jafn krúttleg skáldsaga og hún lítur út fyrir við fyrstu sýn. […] Groddalega einlægur frásagnarháttur bókarinnar gerir að verkum að Eiríkur kemst upp með að fjalla um efni sem í höndum einhverra gæti orðið bæði væmið og ósmekklegt.“
Jón Yngvi Jóhannsson – Tímarit Máls og menningar
„Eitur fyrir byrjendur […] er saga sem tekur verulega á taugarnar og því tæpast fyrir viðkvæmar sálir enda vílar Eiríkur Örn ekki fyrir sér að skyggnast inn í myrkustu hugskot mannsins og draga þaðan út alls kyns sora og perragang. En sagan er gríðarlega vel skrifuð […] Í Hugsjónadruslunni sýndi Eiríkur Örn Norðdahl snilldartakta en bætir hér um betur og sýnir svo ekki verður um villst að hann er höfundur sem er kominn til að vera.“
Sigríður Albertsdóttir – DV
„Eiríki tekst ótrúlega vel að tvinna þjáningu þessar persóna saman, og hann gerir það oft með því að setja þær í undarlegar aðstæður þar sem öfgar mætast, og maður bíður spenntur eftir viðbrögðum. “
Bjarki Valtýsson – Vettvangur.net
„Bók Eiríks kemur inná margar tilfinningar, yfir lestrinum má bæði hlæja og gráta. Eiríkur skrifar mjög vel og maður líður áfram um lipran textann og erfitt var að leggja frá sér bókina. Frábærir dómar um hana koma ekki á óvart.”
Kristján Freyr Halldórsson, bóksali
„Þegar á allt er litið er þetta því engin skemmtisaga og á köflum er hún þó nokkuð grótesk. Það er því ekki hægt að segja að maður geisli af hamingju að lestri loknum – en það er ekki eins og bókmenntir þurfi endilega að þjóna þeim tilgangi. [...] [Andrúmsloft bókarinnar] er hreint ekkert hversdagslegt heldur þvert á móti í meira lagi leyndardómsfullt. Þetta andrúmsloft fangar mann og heldur manni við efnið – mann langar helst ekki að leggja bókina frá sér.”
Þórður Sveinsson – thorfredur.blogspot.com
„Stundum er minna meira og hin hálf-mínímalíska frásögn sögumanns af sambúðinni við vinkonu sína dansar vel hina fínu línu á milli þess að vera of ýkt og að vera ekki nógu ítarleg. Eiríkur Örn er ekki að troða öllum upplýsingum inní frásögnina heldur leyfir textanum þess í stað að anda og njóta sín. Textinn hér er einfaldlega frábær og ég verð að viðurkenna að það eru ekki margar íslenskar skáldsögur á þessum áratug sem ég man eftir sem standa Eitrinu jafnfætis í þeim efnum.”
Kristján Atli – blog.kristjanatli.com
„Algjörlega óumbeðinn er ég að glugga í Eitur fyrir byrjendur. Ég fór upp að síðu 40 áðan. Það var nánast nautn. Flottur stíll, draumkennt andrúmsloft, ófyrirsjáanleiki. Þrælgóður texti.”
Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur
„Þetta er ferlega vel skrifaður texti. Það er eitthvað flæði, einhver taktur sem rígheldur manni við lesturinn. Þegar best lætur þá er iðandi fjör í textanum, svolítið eins og í sumum af bestu ljóðum Eiríks, það er svona danstaktur.“
Jón Yngvi Jóhannsson – Kastljós
„Bókin er grípandi og endalokin óvænt og ekki endilega augljós. […] Eitur fyrir byrjendur er ekki stór bók en hún fjallar um mikilvæga atburði.“
Þórdís Gísladóttir – Morgunblaðinu
„Sorgin í sögunni, sem er umtalsverð, er ekki tækluð með neinu sorgarklámi, sem betur fer. Sögumaðurinn sýnir hæfilega nærgætni þó að hann sé stundum meinhæðinn, sem er undarlega heillandi, eins sikk og það hljómar. [...] Eiríkur Örn Norðdahl sýnir á sér nýjar hliðar með Eitri fyrir byrjendur. Hún er dýpri, einhvern veginn fegurri en fyrri bækur hans. Og þó að kafað sé í innsta eðli mannlegrar sorgar er það gert af hæfilegum stráksskap þess sem veit að sorgin og sektin verða alltaf til staðar hvort sem við lokum okkur inni eða eitrum fyrir okkur. Þess vegna er um að gera að láta byrðarnar ekki sliga sig…og bara flissa svolítið.“
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir – Víðsjá