e.e. cummings

mér líkar við líkama minn þegar hann er með þínum

mér líkar við líkama minn þegar hann er með þínum
líkama. Hann er svo gjörla nýr hlutur.
Vöðvar betur og taugar meir.
mér líkar við líkama þinn. mér líkar við það sem hann gerir.
hversu hann hversar. mér líkar við að þukla hrygg
líkama þíns og bein hans,og skjálfandi
- þéttan – mýkt leika hans og sem ég mun
aftur og aftur og aftur
kyssa, ég kann við að kyssa hitt og þetta á þér
ég kann við að,strjúka varlega þessa,yfirgengilegu loðnu
rafmagnaðrar gæru þinnar,og hvað-er-það kemur
yfir hold sem skilst í sundur…. Og augun stórar ástarmylsnur,

og mögulega nýt ég skjálftans

af undir mér þér svo gjörla nýrri

e.e. cummings

Tags: , ,

Svaraðu kallinu!