Riddari niðurrifsins – fundið ljóð
Stundum rekur á fjörur mínar texti, sem fyrir sakir einhverra eiginleika sinna, er svo magnaður að ég fæ yfirþyrmandi löngun til að gera eitthvað við hann. Þetta gerðist síðast í gær, þegar ég las svargrein Ragnars Halldórssonar til Hallgríms Helgasonar, texta sem kjarnar á einhvern undarlegan hátt þann eiginleika sumra einstaklinga – fárra, þessa dagana og oft fleiri – til þess að krefjast hvorstveggja í senn, þýlyndis og fylgispektar, af dæmalausri ástríðu þess sem sér alla veröld sína hrynja og getur ekki á nokkurn hátt horfst í augu við það. Þetta viðhorf er (misástríðufullt) ráðandi í stjórnarflokkunum báðum þessa dagana, en víðast hvar annars staðar sýnist mér fólki heldur frekar misboðið, en það kæri sig um að stökkva Geir og Ingibjörgu til varnar eins og vel tamdir húsþrælar.
Það má kalla þetta Bjarts-í-sumarhúsum-heilkenni eða bannað-að-rugga-sökkvandi-bátum, eða hvað sem er – um þetta hafa verið ortar óteljandi retórískar klisjur og óþarfi að tyggja þær allar upp hér. Enda kom það á daginn, þegar ég hafði hugsað mig vel og lengi um, að líklega væri bara best að gera sem minnst við sjálfan textann.
Þetta er stórgott. Kostulegt vídeó.
-Ógeðslega fyndið.
Óborganlegt vídeó… takk…
Mjög gott. Þegar ég byrjaði á greininni þá hélt ég að hún væri háð, svo áttaði maður sig á því að hún væri skrifuð í fullri alvöru.
Jedúdda mia…
Þetta er með því besta …
Andskoti ertu annars leiðtogalegur.
Takk fyrir þetta!
Ýkt!
Nú er greinin komin í rétt form, takk fyrir mig
Kærar þakkir –
Bendi þeim sem hafa áhuga á meiru einnig á Kreppusonnettuna í flutningi Jóns Sigurðssonar, og Iceland Report í flutningi Arnolds Schwarzeneggers – en hvorutveggja má finna hér: http://www.norddahl.org/konkret/
Frábær vídjó bæði tvö, Riddari niðurrifsins og Kreppusonnettan!
Stórkostlegt!
Árið varð 1944.
Bravó!
Þetta þykir mér virkilega gott myndband.
Flottur lestur, magnaður “effect” og víkingahjálmurinn í bakgrunni er óborganlegur; bæði sem ádeila og hæðnisskraut.
Bestu þakkir.
þvílíkur leiksigur.
Þó að þessi kommentasúpa sé hreinlega ógeðsleg samsuða af halelújahrópum, sauðslegu krítíkleysi og hópsálarsamsinnum er vídeóið bara alveg ágætt og hornin very nice touch.
Sjitt, tvennt, jafnvel þrennt:
1. Hvernig í ósköpunum hélstu andliti á meðan, með öðrum orðum: hversu margar tökur?
2. Ekki áttirðu hjálminn fyrir? Eða míkrófóninn?
Þetta er heil helvítis dásemd! Klapp klapp, meira svona!
Þakka Hermanni fyrir að kommenta milli þess sem ég opnaði síðuna, horfði á og á endanum kommentaði. Hallelújahróp, meira svoleiðis, húrra!
Gott. Held samt að Ragnar myndi jafnvel túlka þetta enn betur sjálfur. Sá hann einu sinni taka trylling á afgreiðslustelpu í pósthúsi og það var svaka fínn performans. Algjörlega tjúllaður!
Arngrímur: Ein taka – að undangenginni einni æfingu.
Hjálmurinn var brúðkaupsgjöf, eigum líka minni stelpu víkingahjálm á Nödju.
Míkrafónninn er raunverulegt upptökutól, rándýr og yndislegur, sem ég keypti fyrir nokkrum árum (eða var með í láni í nokkur ár og keypti í sumar, réttara sagt).
Hrein snilld. Meira svona. Koma svo!