Riddari niðurrifsins – fundið ljóð

Stundum rekur á fjörur mínar texti, sem fyrir sakir einhverra eiginleika sinna, er svo magnaður að ég fæ yfirþyrmandi löngun til að gera eitthvað við hann. Þetta gerðist síðast í gær, þegar ég las svargrein Ragnars Halldórssonar til Hallgríms Helgasonar, texta sem kjarnar á einhvern undarlegan hátt þann eiginleika sumra einstaklinga – fárra, þessa dagana og oft fleiri – til þess að krefjast hvorstveggja í senn, þýlyndis og fylgispektar, af dæmalausri ástríðu þess sem sér alla veröld sína hrynja og getur ekki á nokkurn hátt horfst í augu við það. Þetta viðhorf er (misástríðufullt) ráðandi í stjórnarflokkunum báðum þessa dagana, en víðast hvar annars staðar sýnist mér fólki heldur frekar misboðið, en það kæri sig um að stökkva Geir og Ingibjörgu til varnar eins og vel tamdir húsþrælar.

Það má kalla þetta Bjarts-í-sumarhúsum-heilkenni eða bannað-að-rugga-sökkvandi-bátum, eða hvað sem er – um þetta hafa verið ortar óteljandi retórískar klisjur og óþarfi að tyggja þær allar upp hér. Enda kom það á daginn, þegar ég hafði hugsað mig vel og lengi um, að líklega væri bara best að gera sem minnst við sjálfan textann.

Greinin birtist í Fréttablaðinu í gær.

Tags: , , ,

allt þetta fólk bregst við “Riddari niðurrifsins – fundið ljóð”

  1. Þetta er stórgott. Kostulegt vídeó.

    -Ógeðslega fyndið.

    #238
  2. Sigurður Jónsson

    Óborganlegt vídeó… takk…

    #239
  3. Mjög gott. Þegar ég byrjaði á greininni þá hélt ég að hún væri háð, svo áttaði maður sig á því að hún væri skrifuð í fullri alvöru.

    Jedúdda mia…

    #240
  4. Hlynur Þór Magnússon

    Þetta er með því besta …

    Andskoti ertu annars leiðtogalegur.

    #241
  5. Hrafnkell

    Takk fyrir þetta!

    #242
  6. Haukur SM

    Ýkt!

    #243
  7. Nú er greinin komin í rétt form, takk fyrir mig

    #244
  8. Eiríkur Örn

    Kærar þakkir –

    Bendi þeim sem hafa áhuga á meiru einnig á Kreppusonnettuna í flutningi Jóns Sigurðssonar, og Iceland Report í flutningi Arnolds Schwarzeneggers – en hvorutveggja má finna hér: http://www.norddahl.org/konkret/

    #245
  9. Sigríður Sigurðardóttir

    Frábær vídjó bæði tvö, Riddari niðurrifsins og Kreppusonnettan!

    #246
  10. broddisig

    Stórkostlegt!

    #247
  11. Björgvin Valur

    Árið varð 1944.

    #248
  12. Sigurður Gunnarsson

    Bravó!

    #249
  13. Þetta þykir mér virkilega gott myndband.

    Flottur lestur, magnaður “effect” og víkingahjálmurinn í bakgrunni er óborganlegur; bæði sem ádeila og hæðnisskraut.

    Bestu þakkir.

    #250
  14. steinarr logi

    þvílíkur leiksigur.

    #251
  15. Hermann

    Þó að þessi kommentasúpa sé hreinlega ógeðsleg samsuða af halelújahrópum, sauðslegu krítíkleysi og hópsálarsamsinnum er vídeóið bara alveg ágætt og hornin very nice touch.

    #252
  16. Sjitt, tvennt, jafnvel þrennt:

    1. Hvernig í ósköpunum hélstu andliti á meðan, með öðrum orðum: hversu margar tökur?

    2. Ekki áttirðu hjálminn fyrir? Eða míkrófóninn?

    Þetta er heil helvítis dásemd! Klapp klapp, meira svona!

    #253
  17. Þakka Hermanni fyrir að kommenta milli þess sem ég opnaði síðuna, horfði á og á endanum kommentaði. Hallelújahróp, meira svoleiðis, húrra!

    #254
  18. Dr. Gunni

    Gott. Held samt að Ragnar myndi jafnvel túlka þetta enn betur sjálfur. Sá hann einu sinni taka trylling á afgreiðslustelpu í pósthúsi og það var svaka fínn performans. Algjörlega tjúllaður!

    #255
  19. Eiríkur Örn

    Arngrímur: Ein taka – að undangenginni einni æfingu.

    Hjálmurinn var brúðkaupsgjöf, eigum líka minni stelpu víkingahjálm á Nödju.

    Míkrafónninn er raunverulegt upptökutól, rándýr og yndislegur, sem ég keypti fyrir nokkrum árum (eða var með í láni í nokkur ár og keypti í sumar, réttara sagt).

    #256
  20. Björn Þorsteinsson

    Hrein snilld. Meira svona. Koma svo!

    #263

Svaraðu kallinu!