Reykjavík hérumbil

Í dag les ég upp á alls þremur stöðum. Eftir eina og hálfa klukkustund verð ég í Bóksölu stúdenta, þ.e. klukkan fjögur að staðartíma. Þá klukkan átta á Te & kaffi, held ég það heiti þessa dagana, s.s. Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi. Þar verð ég áreiðanlega bæði fyrstur og tímanlega fyrstur, því ég þarf að hlaupa út og koma mér á Saltfélagið, hvar ég les klukkan 21.

Á morgun er svo Nýhilkvöld! Steinar Bragi, Ingvar Högni, Þórunn Vald, Kári Páll, Offi og auðar yðmjúkur.

Svaraðu kallinu!