Niðurstöður

Besta ljóðabókin í ár?

  • Refur - Emil Hjörvar Petersen (50%, 44 Votes)
  • Annarskonar sæla - Kristín Eiríksdóttir (10%, 9 Votes)
  • Ég bið að heilsa þér - Gísli Þór Ólafsson (8%, 7 Votes)
  • Fréttir frá mínu landi - Ármann Jakobsson (5%, 4 Votes)
  • Með villidýrum - Kári Páll Óskarsson (5%, 4 Votes)
  • Tímabundið ástand - Jónas Þorbjarnarson (3%, 3 Votes)
  • Þess á milli - Ingvar Högni Ragnarsson (2%, 2 Votes)
  • Loftnet klóra himin - Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir (2%, 2 Votes)
  • Tvítólaveizlan - Ófeigur Sigurðsson (1%, 1 Votes)
  • Eg skal kveða... ástarljóð Páls Ólafssonar (1%, 1 Votes)
  • Þriðja Davíðsbók - Davíð Hjálmar Haraldsson (1%, 1 Votes)
  • Sjáðu fegurð þína - Kristín Ómarsdóttir (1%, 1 Votes)
  • Ljóðasafn - Steinn Steinarr (1%, 1 Votes)
  • Ljóðasafn 1978-2008 - Sjón (1%, 1 Votes)
  • Óður eilífðar - Þorgeir Rúnar Kjartansson (1%, 1 Votes)
  • Illgresi - Örn Arnarson (1%, 1 Votes)
  • Árstíð í helvíti - Rimbaud í þýðingu Sölva B. Sig. (1%, 1 Votes)
  • Hvert orð er atvik - Þorsteinn frá Hamri (1%, 1 Votes)
  • Flautuleikur álengdar - þýðingar Gyrðis (1%, 1 Votes)
  • Ljóð 1947-1995 - Sigfús Daðason (1%, 1 Votes)
  • Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu - Magnús Sigurðsson (1%, 1 Votes)
  • Til þín brosa gráir steinar - Þórarinn Torfason (0%, 0 Votes)
  • Rósamál - Steinunn P. Hafstað (0%, 0 Votes)
  • Þórðarbókin - Þórður Helgason (0%, 0 Votes)
  • Sjöund/ljóðaumslag - Gunnar Hersveinn (0%, 0 Votes)
  • Svefnvindadraumur - Jón Bjarman (0%, 0 Votes)
  • Þak hamingjunnar - Katrín Baldursdóttir (0%, 0 Votes)
  • To bleed straight - Sigurbjörg Þrastardóttir (0%, 0 Votes)
  • Vébönd - Þorsteinn Bergsson (0%, 0 Votes)
  • Uppsveifla/Niðursveifla - Þorgerður Mattía Kristiansen (0%, 0 Votes)
  • Vermsl - Hrafn Andrés Harðarson (0%, 0 Votes)
  • Kvæðasafn - Þórarinn Eldjárn (0%, 0 Votes)
  • Dvalið hjá djúpu vatni - Steinn Steinarr (0%, 0 Votes)
  • Gunnar Dal ljóðasafn (0%, 0 Votes)
  • Heitar lummur - Hjálmar Freysteinsson (0%, 0 Votes)
  • Hvítakista - Ingimar Erlendur Sigurðsson (0%, 0 Votes)
  • Innantóm fegurð - Baj (0%, 0 Votes)
  • Í fjarveru trjáa - Ingunn Snædal (0%, 0 Votes)
  • Í hentugum tíma - Anna S. Snorradóttir (0%, 0 Votes)
  • Litir & ljóð úr Breiðadal - Guðjón Sveinsson (0%, 0 Votes)
  • Lítil kvæðabók - Njáll Sighvatsson (0%, 0 Votes)
  • Ljóð (diskur) - Gerður Kristný (0%, 0 Votes)
  • Ljóð (diskur) - Sjón (0%, 0 Votes)
  • Agnarsmá brot úr eilífð - Ólafur Ragnarsson (0%, 0 Votes)
  • Ljóð og myndir - Þorsteinn frá Hamri (0%, 0 Votes)
  • Ljóðleg - Berglind Gunnarsdóttir (0%, 0 Votes)
  • Borgarlínur - Ari Trausti Guðmundsson (2%, 0 Votes)

Total Voters: 88

Niðurstöðurnar eru þessar. Refur Emils Hjörvars er 5 sinnum betri en Sæla Stínu. 44 sinnum betri en heildarverk Sigfúsar Daðasonar.

Þannig fór um samkvæmisleik þann. Á maður að leggja frekar út af þessu?

Tags:

allt þetta fólk bregst við “Niðurstöður”

  1. Hési

    Er þetta kosningaskandall?

    Var átt við vélarnar?

    Hver er þessi Emil?

    Þarf hann ekki að segja af sér?

    #307
  2. Eiríkur Örn

    Tja og tja?

    Emil er með helming greiddra atkvæða. En hvernig sannar maður slíkt – og ásakar maður án sannana?

    Ég veit ekki neitt og kann ekki neitt. Hef ekki einu sinni séð þessa bók, kannski er hún bara svona góð. Hún fékk held ég ágætis dóma, en það þarf ekki að þýða neitt.

    #308
  3. Hési

    Er eitthvað hallærislegra en að svindla í fegurðarsamkeppni? Og það á sjálfum jólunum? Til að lenda efst á vinsældalista á ljóðabloggi sem enginn les?

    Það er gagnfræðaskólafnykur af þessu máli.

    #309
  4. Eiríkur Örn

    Ha? Gagnfræðaskólanykur?

    #310
  5. Him

    Ljóðaútgáfan Fnykur er greinilega með gagnfræðinga á launum í smæstu málum. Endurtalningu!

    #311
  6. lommi

    frábær afmælisgjöf

    #313
  7. Refur

    Eru svik og lygar ekki okkar helsti drifkraftur?

    #314
  8. Nauh, en ánægjulegt. Þetta hlýtur að vera skoðun meirihluta þess sem kaus. Ég er upp með mér.

    #315
  9. Eiríkur Örn

    Það er leiðinlegt að þurfa að segja það, Emil – en þessi atkvæði bárust öll í klöstrum, 10-20 talsins á álíka mörgum mínútum. Sem þýðir að annað hvort kýs sami mörgum sinnum, eða einhver smalaði á ákveðnum tímapunktum.

    Sem breytir því ekki að þetta hlýtur að vera skoðun helmings þeirra sem kusu. En það er kannski óþarfi að vera upp með sér, enda allt saman ómarktækt – meira að segja það litla takmark að uppgötva hvað lesendur hér fíluðu best fór út um þúfur. Nema auðvitað maður þurrki Refinn einfaldlega út og skoði restina – hann eiginlega ógildist út á þetta. Því nú ver og miður.

    #316
  10. Nei heyrðu nú mig. Ertu búinn að tékka á IP-addressum þeirra sem kusu? Ef engin er sú sama er ekkert gruggugt á ferli.

    En, haha, jújú, það gildir einu fyrir mig þótt niðurstöðurnar verði gerðar ógildar. Þær verða alveg örugglega marktækari fyrir vikið.

    #317
  11. En þetta er náttúrulega saklaust jólaglens – mér fannst fyndið að benda nokkrum vinum á könnunina eftir að ég sá hversu fáir kusu. Í sjálfu sér ágætis auglýsing fyrir heimasíðu Eiríks.

    Afsakið.

    Þetta er annars búið að vera magnað ljóðaár, fullt af góðum bókum. Til hamingju!

    Gleðileg jól!

    Bestu kveðjur,
    Emil

    #318

Svaraðu kallinu!