Harold Pinter
Það má vera að dauðinn eldist
Það má vera að dauðinn eldist
en áhrifalaus er hann ekki
En dauðinn afvopnar þig
með sínu tæra ljósi
og hann er svo kænn
að þú veist aldrei nokkru sinni
hvar hann bíður þín
tælir þinn vilja úr æðum
færir þig úr hverri spjör
er býst þú bardagaklæðum
En dauðinn leyfir þér
að ráða þínum dómum
á meðan hann drekkur hunangið
úr þínum yndislegu blómum
Harold Pinter – 10. október, 1930 – 24. desember, 2008.
Já, ég sem sagt þýddi þetta – með flensu og án þess að hafa mikinn tíma til þess.