Að selja sjálfan sig (mella! mella!)

Ég er allur í kynningargírnum þessa dagana, vegna bókarinnar Ú á fasismann – og fleiri ljóð, og þessi síða sem og allt annað í minni persónu orðið að einni auglýsingu. Ég stend á götuhornum og læt svo líta út sem ég úi á fasismann, set mig í stellingar og geri stút á munninn. Úa á fasismann sem keyrir hjá.

Í kvöld er Nýhil á Næsta bar – klukkan 20  og þangað mætir allt gott fólk.

Annars er það Kreppusonnettan hérna. (myndband)

Kennara með köldu blóði má sjá hérna. (myndband)

Iceland Report on the Observance of Standards and Codes hérna. (myndband)

Live upplestra í tugatali má finna hér. (myndbönd)

Þá eru fleiri myndljóð hér.

Upplestra má einnig finna í hljóðaljóðaspilaranum hér á hægri hönd.

Þeim sem eru með blogg og heimasíður – og vilja vera mér velviljaðir, af einni eða annarri ástæðu – er bent á að hægt er að setja myndböndin á sínar eigin síður, eða hlekkja á þau hér, eftir hentugleikum. Slíkt gleður mig ægilega.

Bókina er hægt að kaupa í bókaverslunum eða til dæmis hér.

Tags: ,

Svaraðu kallinu!