Það má vera að dauðinn eldist Það má vera að dauðinn eldist en áhrifalaus er hann ekki En dauðinn afvopnar þig með sínu tæra ljósi og hann er svo kænn að þú veist aldrei nokkru sinni hvar hann bíður þín tælir þinn vilja úr æðum færir þig úr hverri spjör er býst þú bardagaklæðum... »
Archive for December, 2008
Niðurstöður
Niðurstöðurnar eru þessar. Refur Emils Hjörvars er 5 sinnum betri en Sæla Stínu. 44 sinnum betri en heildarverk Sigfúsar Daðasonar. Þannig fór um samkvæmisleik þann. Á maður að leggja frekar út af þessu? »
Gleðileg jól
Jæja, gleðileg jól. Ég er með flensu í Svíþjóð. Er dálítið út úr lúppunni, ekki búinn að svara öllu sem ég ætti að svara eða sinna öllu sem ég ætti að sinna. »
Að mála heiminn hlandgulan
Sigurður Hróarsson skrifar dóm um Ú á fasismann í Fréttablaðið og bregst mér ekki frekar en fyrri daginn. Hann segir reyndar tilgangslaust að skrifa um hana, en honum þótti tilgangslaust að lesa þá síðustu (I’d rather praise it than read it) svo þetta er kannski framför. “Þetta er skáldskapur sem hafnar lýrík, skáldskapur sem... »
Allen Ginsberg
Ég er stundum mjög viðutan, og þá sérstaklega þegar ég bregð út af rútínum dagsins. Í gær lá mér á að komast úr húsi og ákvað að taka morgunmatinn úti. Ég hljóp af stað, tók með mér kaffibolla af Ryytmi, og fór að sinna erindum. Sjö klukkustundum síðar, þar sem ég var á gangi,... »
Thee Viking
Ég veit aldrei hvort fólk er að grínast með þennan blessaða bát, sem ýmist er nefndur The Viking, Three Vikings eða báturinn með stafsetningarvilluna. Ég sem sagt veit ekki hvort Íslendingar eru upp til hópa ómálga á ensku, þrátt fyrir að stór hluti menningarneyslu okkar fari fram á þessu tungumáli – en þetta er... »
Óþolandi ástand
Það kjósa ekki nógu margir í könnuninni. Smellið hér. Á morgun opnar Dagblaðið Nei. að nýju. Strax á morgun. Það er að segja, á miðnætti í kvöld – búið að fjölga blaðamönnum og tálga þá sem fyrir voru. Ekki missa af þessu. »
Þá skelfur jörð og skakast himnar
Sigurvegarinn í ljóðahluta bóksalaverðlaunanna er tæplega tuttugu árum eldri en franska ljóðskáldið Arthur Rimbaud, skreið í heiminn skömmu áður en Keats lést fyrir aldur fram, fimm mánuðum áður en Blake lést – sjálfur Páll Ólafsson, ástarljóðaskáld og samtímamaður Tolstojs, ekki bara dauður heldur löngu dauður og elstur gamalla á ljóðabókametsölulistanum. Í næstu tveimur sætum... »
Könnunin, blessunin
Af einhverjum orsökum, sem ég hef ekki komist til botns í, hrynur hliðarvalmyndin öll neðst á síðuna þegar ljóðabókaleikurinn er hér inni. Ég hef því tekið hana út – en það er hægt að nálgast hana hér. »