Maíkonungurinn – valin ljóð eftir Allen Ginsberg


Allen Ginsberg (1926–1997) var eitt mikilvægasta ljóðskáld 20. aldar og með áhrifamestu einstaklingum hennar í menningu og listum. Hann hefur verið nefndur æðstiprestur bítkynslóðarinnar, guðfaðir hippakynslóðarinnar, langafi pönkkynslóðarinnar – hann blés móði í brjóst listamönnum af ótal kynslóðum, frá Jack Kerouac til Bobs Dylan til The Clash til Rage Against the Machine.

Í Maíkonunginum er úrval ljóða Allens Ginsberg, þeirra á meðal „Ýlfur“ og önnur helstu afrek skáldsins.

Þýðandinn, Eiríkur Örn Norðdahl, hefur verið óþekktarormur á íslensku menningarsviði síðan hann stofnaði byltingarforlagið Nýhil og smitaði fólk af Heimsendapestum. Það fer honum einkar vel að þýða mergjaðan orðaflaum Ginsbergs.

Mál og menning gefur út.

Tags: , ,

Svaraðu kallinu!