Ljóðametsölulisti

Látnir: 6
Lifandi:5

Ein ný frumsamin ljóðabók (og í síðasta sæti)

Fleira áhugavert? Tveir geisladiskar, sálmabók, hagyrðingar – já og engin þýðing.

Mér hefur reyndar verið sagt að sölutölurnar á þessum lista séu svo lágar að varla sé mark á honum takandi. Þetta sé spurning um 10 seld eintök í fyrsta sætið og 8 í annað, svona nærri því að minnsta kosti. Þá er augljóst að best seldu ljóðabækurnar á Íslandi komast aldrei inn á listann því þær eru ekki seldar í búðum heldur í póstkröfu og á kaffihúsum.

Tags: ,

allt þetta fólk bregst við “Ljóðametsölulisti”

  1. Eiríkur Örn

    Tvær konur …

    Í fyrsta sæti er bók frá forlagi sem er ekki lengur til.

    Annars er Dimma eina forlagið með tvo titla, sem báðir eru geisladiskar. Raunar á M&M líka hlut í Illgresinu, þó það sé ekki tekið fram. M&M er því kannski með einn og hálfan titil.

    Ekkert Nýhil, ekkert Nykur, ekkert Uppheimar.

    Ég er ekki alveg með það á hreinu, en mér sýnist 9 af 11 bókum vera með áður útgefnu efni (þó ég viti ekki með diskana, og upplestur sé eðlilega ekki það sama og bókstafir á síðu – er ekki viss með kvæðabók Njáls).

    Ég tek til baka að það sé bara ein frumsamin ljóðabók – Heitar lummur er það augljóslega líka, og ekkert nema snobb-tendens í mér að sleppa henni, þó hún sé hagyrðingsrit.

    #217
  2. Eiríkur Örn

    9 titlanna komu fyrst út í ár. Jólakvæðin og sálmarnir eru eldri.

    #218
  3. Eiríkur Örn

    Hér má sjá hvaða ljóðabækur komu út í ár:
    http://bokatidindi.is/page_37.html

    Ég er hissa að sjá ekki verðlaunabók Magnúsar Sigurðssonar, Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu – auk:

    Annars konar sæla Kristínar Eiríks
    Flautuleikur álengdar – þýðingar Gyrðis
    Dvalið hjá djúpu vatni Steins Steinarr (skýrist kannski af verðinu – 8 þús.)
    Gáttir Nýhils
    Loftnet klóra himinn, Þórunnar Vald.
    Kvæðasafn Þórarins Eldjárn
    Sjáðu fegurð þína eftir Kristínu Ómars
    Óður eilífðar eftir Þorgeir Rúnar Kjartansson

    Þá nær hvorug minna bóka – Maíkonungurinn og Ú á fasismann – inn á lista.

    Aðrar bækur hafa ýmist ekki verið nógu áberandi eða eru of nýkomnar út (t.d. Með villidýrum Kára Páls) eða komu út of snemma í ár (t.d. Í fjarveru trjáa Ingunnar Snædal og Tvítólaveizla Ófeigs Sigurðar).

    Alls eru 59 ljóðabókatitlar í Bókatíðindum. Þrjár á listanum eru ekki í bókatíðindum (jólaljóð, sálmar og Halla).

    #219
  4. Ingi Björn

    Til að halda öllu til haga þá er faktískt séð ein frumsamin ljóðabók þarna til viðbótar, en hún er innifalin í ljóðasafni Gunnars Dal.

    #220
  5. Eiríkur Örn

    Nú, ókei – vissi það ekki. Takk fyrir upplýsingarnar.

    #221

Svaraðu kallinu!