Kennara með köldu blóði
Upplestur við þetta ljóð má finna á disknum sem fylgir með Ú á fasismann – sem má versla hér. Myndbandsljóðið gerði ég fyrir um ári síðan og var það meðal annars sýnt í Kiljunni snemma í ár. Ég endurbirti það hér í tilefni af útkomu bókarinnar.
Á disknum má einnig finna upplestur við Höpöhöpö Böks (sem er ljóð sem inniheldur bara einn sérhljóða: ö) og hef ég gert myndbandsljóð við það líka, sem sýnt verður í Kiljunni einhvern tíma fyrir jól.