Ein spurning

Ef Geir lítur svo á að hann beri ekki ábyrgð á kreppunni, heldur bankamennirnir, hvers vegna þjóðnýtti hann þá skuldir þeirra – tók þær svo að segja á sig fyrir hönd skattgreiðenda?

Var það af eintómri aumingjagæsku?

Eða finnst honum kannski að þó hann hafi ekki borið neina ábyrgð í málinu, þá hafi íslenskir skattgreiðendur fitað svo bankana, að þeim væri réttast að greiða skuldir þeirra? Fyrir flatskjái og Musso-jeppa?

Og enn fremur (afsakið, þetta átti að vera ein spurning) – eru það endilega meðmæli með forsætisráðherra, og þar á undan fjármálaráðherra, að hann hafi ekki haft neitt um rekstur landsins að segja þau ár sem hann var í embætti? Að bankarnir hafi ekki verið á hans ábyrgð (þó ríkið skrifi undir ábyrgð fyrir innlögnum í útlöndum og svo víðere) …

Er hr. Haarde að lýsa yfir eigin vanhæfi? Æpandi á hjálp (en enginn hlustar): stoppið mig ég get þetta ekki lengur!

Tags:

Eitt einasta smáblóm bregst við “Ein spurning”

  1. Baldur Ragnarsson

    Ekki hætta! Þú ert kominn á skrið!

    #222

Svaraðu kallinu!