Viðar Guðjohnsen & ég

Erum búnir að undirrita áskorun um kosningar hið snarasta. Hér.

Svona sameinast fólk á ögurstundu.

Ekki það ég telji nokkrar líkur á því að boðað verði til kosninga, nei, ég er fullur vonleysis þessa dagana. Íslendingar – kannski ætti ég að segja Vesturlandabúar, kannski bara nútímamaðurinn eða jafnvel bara allir alltaf fyrr og síðar – kunna ekki að standa saman. Eða, Íslendingar halda að það að standa saman snúist um að vera sammála um hvert einasta smáatriði. Vinur vinar míns kallaði Þorvald Gylfason kapítalista á mótmælum á dögunum, og var sagt að fara heim til sín, þetta væru ekki hans mótmæli. En Þorvaldur Gylfason er kapítalisti – ha, var ekki einhver að tala um keisarans nekt?

- En keisarinn er ekki í neinum fötum!

- Þegi þú, þetta eru ekki þín mótmæli.

Aðrir geta ekki einu sinni mætt af áhyggjum af því að þeir séu að styðja eitthvað sem er of þröngt skilgreint eða of vítt skilgreint eða ekki nógu töff eða of samfylkingar- eða of skrílslegt (fólk gæti bara hreinlega ætlað að brenna einhverja silkidulu til að sýna ósátt sína í verki, og svoleiðis er nú bara ekki hægt að bjóða virðulegum eldri hjónum uppá, ekki svona anarkista-dót eitthvað) – enn aðrir geta ekki mætt af því það er boðað til of margra mótmæla.

Og þannig tvístrast allir út um hvippinn og hvappinn. Fara heim til sín, skrá sig í nýjan byltingarsinnaða grúppu á Facebook og undirrita bænaskjal á netinu. Sem er gott og blessað. En það þýðir ekki neitt fyrir fólk að krefjast neins, ef fólkið er ekki tilbúið til að grípa til eigin ráða ef ekki er á það hlýtt. Því valdamenn á Íslandi hafa löngu sýnt að þeir virða fólkið ekki neitt. Þeim er alveg sama. Og afleiðingarnar eru engar. Eins og Dr. Gunni bendir á í Fréttablaðinu munu 33% alltaf kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Og Samfylkingin mun alltaf tala eins og hún hafi aldrei verið í stjórn. Og ráðamenn munu sannfæra fólkið að besta leiðin til að losna við tremmann sé að drekka hann burt á kostnað skattgreiðenda. Þess vegna er IMF á Íslandi. IMF er meira brennivín, meiri kapítalismi, meiri frjálshyggja. En ég meina, maður losnar ekki við tremmann með því að stara út í loftið, eða hvað?

Brrr.

Og ég fyllist vonleysi og fer að halda að áþreifanlegustu áhrif kreppunnar á mig – hvað sem líður gengisæðinu – verði þetta vonleysi. Að horfa upp á fólk gera ekki byltingu. Að gera ekki byltingu sjálfur. Að fylgjast með heimskulegasta spuna sem spunninn hefur verið á Íslandi, að fylgjast með gamla Íslandi eldast undir formerkjum Nýs Íslands, að fylgjast með Samfylkingunni æða úr faðmi útrásarmanna í faðm IMF og allt í nafni verkalýðs og velferðar og jöfnuðar.

Vandamálið er, eins og Haukur Már hefur bent rækilega á, kapítalismi og ef ekki verður horfst í augu við það er ekki von á breytingum. Það má alveg æsa sig við kapítalistana og skamma seðlabankastjóra og djöflast á alla kanta, brenna fána og bölva mönnum – en ef ekki stendur til að breyta um kúrs er það ekki nema hjómið eitt. Ef boðað verður til kosninga, ef ráðamenn gefa sig og boða til kosninga, og ríkisstjórnarflokkarnir fá 65% fylgi – eins og kannanir gefa til kynna – tja, þá getiði sjálfum ykkur um kennt.

Tags:

Svaraðu kallinu!