Fyrir Godot
forgodot.com er rannsóknarmiðstöð fyrir ljóðlist rekin af Vladimir Zykov, Stephen McLaughlin og Gregory Laynor. Þegar menn tala um rannsóknir og ljóðlist kemur ósjálfrátt Oulipo hópurinn franski upp í hugann, en Georges Perec, Raymond Queuneau og félagar lögðu það í vana sinn að búa til hugmyndir um ljóð. Til að mynda skrifaði Perec verk sem innihélt ekkert e. Hugmyndir þeirra voru þó ekki allar framkvæmdar, fæstar jafnvel – stærstur hluti þeirra var borinn upp á fundum, samþykktar og þar var látið við sitja. Oulipo hópurinn leit ekki á það sem hlutverk sitt að skrifa oulipo-ljóð, heldur að koma fram með hugmyndir sem væru mögulega framkvæmanlegar. Kanadíska ljóðskáldið Darren Wershler-Henry gaf síðar út heila bók með álíka hugmyndum – ljóðabók sem var ekkert nema runa af hugmyndum um mögulegar ljóðabækur. Hún heitir The Tapeworm Foundry.
Meðal þeirra verka sem komið hafa út úr forgodot.com rannsóknarmiðstöðinni eru I was told to write fifty words, sem inniheldur verk sem innihalda 50 orð. Nýjasta verk þeirra kumpána hefur þó vakið mikla athygli – bæði jákvæða og neikvæða – en þar er um að ræða safnrit sem nefnist Issue 1. Tilkynnt var um útkomu verksins fyrir um viku síðan og gefin lýsing. 3.785 síðna pdf-bók með ljóðum eftir 3.164 höfunda (raunar eru nokkur nöfnin tvítekin). Listinn yfir höfunda er merkilegur – þar er að finna nöfn eins og Aram Saroyan, Robert Creeley, Name Jun Paik, Aldous Huxley, Edgar Lee Masters og Jack Spicer auk ótal margra misþekktra bandarískra skálda, og fáeinna annarra (t.a.m. eru Leevi Lehto, Pejk Malinovski, Kari Kokko og Gunnar Ekelöf með). Skáldin, sem öll eru með google-alert á nafnið sitt, könnuðust ekki við að hafa gefið leyfi fyrir birtingu á ljóðum sínum í þessu riti og brugðust við hið allra snarasta, sum vel og önnur illa. Mörgum þótti upphefð í þessu, öðrum þótti á sér brotið, og var beðið eftir ritinu í ofvæni. Það leit dagsins ljós í gær og kemur þá á daginn að skáldin kannast ekki við kveðskap sinn – og segjast alls ekki hafa skrifað þessi ljóð. Útkoman er sem sagt 3.164 ljóð sem öll minna hvert á annað, líklega skrifuð af forriti. Og nú eru menn ýmist reiðir, kátir, eða reiðir að þykjast vera kátir til að líta ekki út eins og bjánar. Ýmist reiðast menn að ljóðin, sem þeim þykir léleg, séu við þá kennd, eða þeir reiðast að verið sé að nota nöfn þeirra til að vekja athygli á verkefni sem þeim er á móti skapi, eða þeir hreinlega fýldast að þeir skuli ekki vera með – að þeir teljist ekki nógu merkilegir til að lenda á nær endalaust löngum lista yfir bandarísk ljóðskáld.