Bankar ónefnt kvæði

X.

Gakktu í bæinn

Hatar krosseignatengsl & hatar innistæður & hatar skuldirnar & hatar til að mynda leiguna & hatar reikningana & hatar snertingu  & hatar & hatar & hatar hættusvæðið & hatar til að mynda strandstað & hatar fjármálakerfið & hatar gengishrunið & hatar utanríkisviðskipti & hatar eignabrunann & hatar rekstrarkostnað & hatar hrun fyrirtækja & hatar mannorð okkar í útlöndum & hatar orsakir & hatar & hatar & hatar berskjaldaðan gjaldmiðil & hatar að greina orsakir & hatar samræmda hagstjórn & hatar hugtök eins og jafnvægi og stöðugleika & hatar að kynda undir & hatar eftirspurnarþensluna & hatar ríkisbáknið & hatar spariræðuna & hatar bremsuna & hatar bindiskyldu & hatar gjaldeyrisvarasjóð & hatar tveggja kosta völ & hatar morgunfundarsnakk & hatar sjálfstæða peningamálastefnu & hatar spýtandi fjármagn & hatar til að mynda áhættufjármagn & hatar & hatar & hatar þjóðhagsstofnun & hatar & hatar & hatar sjálfskaparvíti & hatar erlenda seðlabanka & hatar eignabruna & hatar greiðsluviðskipti & hatar þjóðaróvin númer eitt & hatar velferðarkerfið & hatar aðhaldssemi & hatar erlendar skuldbindingar & hatar skattgreiðendur & hatar uppbyggingu & hatar skipbrot & hatar björgunarleiðangur & hatar áhöfnina & hatar ófarir & hatar að læra af reynslunni & hatar til að mynda dóm kjósenda & hatar vinda og veður kapítalismans & hatar umtalsverðar fjárhæðir & hatar heimatrúboðið & hatar eina merkilega þjóðfélagstilraun

Þakka kærlega fyrir komuna

X.

Út með þig

Elskar alþjóðavæðinguna & elskar fjölmiðla & elskar lygaflóðið & elskar nornaveiðar & elskar hamfarir & elskar útrásarblöðrurnar & elskar Baug & elskar skattbyrði & elskar yfirlit yfir eignir og skuldir & elskar & elskar & elskar kröfuhafann & elskar þjóðarskútuna & elskar evruna & elskar þjóðarbúið & elskar íslenskt efnahagslíf & elskar til að mynda kvenlæg gildi & elskar djúphygli & elskar að fara á hausinn & elskar lífeyrissjóði & elskar & elskar & elskar auðlindir & elskar innviði & elskar ringulreið & elskar alþjóðaauðvaldið & elskar almenning & elskar góðærið & elskar skiljanlegar kröfur & elskar & elskar & elskar siðferðislegar spurningar & elskar til að mynda myntbandalag & elskar glímu íslenskra stjórnvalda & elskar Kaupþing & elskar fúlgur fjár & elskar útrásarfyllerí & elskar & elskar & elskar sama gamla tóbakið

Og láttu aldrei sjá þig hér aftur

X.

Opnaðu gluggann, það er heitt

Þráir gullvild & þráir greiðsluþjónustu & þráir vildarklúbb & þráir framtíðarreikning & þráir þrískiptan sparnað & þráir viðbótarlífeyrissparnað & þráir eignastýringaþjónustu & þráir & þráir & þráir afkomuvernd & þráir námsvild & þráir að hanna sitt eigið debetkort & þráir vörðu & þráir til að mynda launavernd & þráir aukakrónur & þráir reglubundinn sparnað & þráir eignalífeyri & þráir bústólpa & þráir stjörnubók & þráir markaðsreikning & þráir & þráir & þráir kostabók & þráir framtíðarbók & þráir fjölskyldubók & þráir sjóðastýringu & þráir til að mynda hávaxtanetreikning & þráir fjárvörslureikning & þráir greiðslumat & þráir viðbótarsöfnun fríðinda & þráir afslátt af lántökugjöldum & þráir ókeypis fjármálafræðslu og –ráðgjöf & þráir til að mynda rýmri yfirdráttarheimild & þráir beinan aðgang að þjónustufulltrúa & þráir & þráir & þráir fría greiðsludreifingu & þráir krakkareikning & þráir að lifa áhyggjulaust ævikvöld

Lokaðu glugganum, það er kalt

X.

Kveikið ljósin, það er myrkt

Óttast gjaldþrotaskipti & óttast innheimtuaðgerðir & óttast kröfur í þrotabú & óttast innheimtumenn ríkissjóðs & óttast árangurslausa fógetagerð & óttast & óttast & óttast lánardrottna & óttast nútímavergang & óttast að gjalda keisaranum það sem keisarans er & óttast til að mynda kyrrsetningu & óttast spottprís & óttast gjaldþrotameðferð & óttast skuldaröð & óttast skiptaráðanda & óttast brunaútsölu & óttast greiðslustöðvun & óttast veðsetta veðtryggingu & óttast & óttast & óttast þinglýst fasteignaveðbréf & óttast réttarstöðu ábyrgðarmanna & óttast kröfuhafa & óttast til að mynda fjármagnshreyfingar & óttast ofhitnun & óttast verðbólgu & óttast viðskiptahalla & óttast & óttast & óttast fjárlagahalla & óttast gjaldeyrisáhættu & óttast fastgengisstefnu & óttast útlánaaukningu & óttast vanskil & óttast til að mynda atvinnuleysi & óttast afskriftir & óttast fit-greiðslur & óttast ársfjórðungsuppgjör & óttast útlánatap & óttast innheimtustörf & óttast greiðsluhegðun & óttast & óttast & óttast baráttuna um ímynd Íslands

Slökkvið ljósin, það er háttatími

Tags: ,

Svaraðu kallinu!