• Forsíða
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ljóð
  • Um Eirík Örn
  • English

    Tilkynning: Ú á fasismann! - og fleiri ljóð

    Ú á fasismann – og fleiri ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl er einstök myndljóðabók. Hér gefur að líta safn myndljóða þar sem stjórnmál eru beruð fyrir börnum, framtíð bókmennta kortlögð á einfaldan en átakalegan hátt, hér eru myndrænar framburðaæfingar, ljóðræn mótmæli, hvatningaorð til alþýðu svo hvín í svitaholunum, perlur úr ljóðaperlum Jónasar og það sem hetjur Íslendingasagna gætu vel hafa sagt. Byltingin er vissulega ekkert teboð en við skulum samt úa saman á fasismann.

    Með myndljóðunum fylgja hljóðaljóð á diski sem tekin voru upp í stúdíói Mugisons fyrir vestan – þar sem illt eðli fasismans er tvíundirstrikað og tíundað án afsláttar. Hlustaðu á hann líka ef þú þorir og sannaðu til: Þetta er magnaðri seiður en nokkur partýmúsík sem þú hefur áður prófað.

    Eiríkur Örn hefur verið ótrúlega iðinn og ötull sem skáld, rithöfundur og þýðandi. Áður hefur hann gefið út ljóðabækurnar Heimsendapestir, Nihil Obstat, Blandarabrandarar, Handsprengja í morgunsárið (ásamt Ingólfi Gíslasyni) og Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum! Einnig skáldsögurnar Hugsjónadruslan og Eitur fyrir byrjendur.

    Eiríkur hlaut Íslensku þýðingarverðlaunin 2007 fyrir þýðingu sína á skáldsögunni Móðurlaus Brooklyn. Nýlega kom út hjá Máli og menningu barnabókin Doktor Proktor og prumpuduftið í þýðingu Eiríks og á næstunni kemur út safnbók þýðinga hans á völdum ljóðum Allens Ginsberg, sem ber heitið Maíkonungurinn.

    Mál og menning gefur út.

    UMSAGNIR

    „Eiríkur Örn Norðdahl er fegursta, viðundurlegasta blómstrið í aldingarði íslenskrar ljóðlistar. Hann er skáld ætingar og upplausnar, fyrirlitlegur geldingur, afkvæmi ristavélar og handbókar um smíði klasasprengja. Og hann er fyrsta og besta 21. aldar ljóðskáld Íslendinga.“

    Steinar Bragi rithöfundur

    „Nýjasta ljóðabók Eiríks Arnar, Ú á fasismann, er að sínu leyti framhald af ýmsu því sem sést hefur í fyrri bókum höfundar, en hér má segja að dirfskan sé færð upp um fjóra táknfræðilega gíra. […]Að öllu samanlögðu er bókin Ú á fasismann því fjölþætt upplifun og órækur vitnisburður um að Eiríkur Örn Norðdahl er fullfær um að reisa kvæði úr rústum og rusli tímans.“

    Hjalti Snær Ægisson / Víðsjá

    „Þetta er skáldskapur sem hafnar lýrík, skáldskapur sem efast um sígilda hæfni ljóðsins til að tjá sannleik síns tíma […] hún er bráðfyndin, háðsk og orðheppin, líka ósvífin og örvandi, orð í tíma töluð. […] Skáldið okkar er hér í fylkingarbrjósti, baðar hetjur gærdagsins háði, býður þeim birginn og nauðgar þeim uppá nöturlegan (tilgangslausan) nútímann með framandi tungum. Aðför bókarinnar að viðteknum smekk og (meintri) úreltri óskhyggju smáborgarans/elítunnar felst líka í því að “lækna líkt með líku”, rifa saman slitinn skrokk með slitnum þræði, afhjúpa fordóma með fordómum, hirta gula pressu með því að mála heiminn hlandgulan og siga óhljóðum á hávaða, bregða fæti fyrir höfuðstaf með öðrum verri.“

    Sigurður Hróarsson - Fréttablaðinu


    1 Comment »



    Viðar Guðjohnsen & ég

    Erum búnir að undirrita áskorun um kosningar hið snarasta. Hér.

    Svona sameinast fólk á ögurstundu.

    Ekki það ég telji nokkrar líkur á því að boðað verði til kosninga, nei, ég er fullur vonleysis þessa dagana. Íslendingar - kannski ætti ég að segja Vesturlandabúar, kannski bara nútímamaðurinn eða jafnvel bara allir alltaf fyrr og síðar - kunna ekki að standa saman. Eða, Íslendingar halda að það að standa saman snúist um að vera sammála um hvert einasta smáatriði. Vinur vinar míns kallaði Þorvald Gylfason kapítalista á mótmælum á dögunum, og var sagt að fara heim til sín, þetta væru ekki hans mótmæli. En Þorvaldur Gylfason er kapítalisti - ha, var ekki einhver að tala um keisarans nekt?

    - En keisarinn er ekki í neinum fötum!

    - Þegi þú, þetta eru ekki þín mótmæli.

    Aðrir geta ekki einu sinni mætt af áhyggjum af því að þeir séu að styðja eitthvað sem er of þröngt skilgreint eða of vítt skilgreint eða ekki nógu töff eða of samfylkingar- eða of skrílslegt (fólk gæti bara hreinlega ætlað að brenna einhverja silkidulu til að sýna ósátt sína í verki, og svoleiðis er nú bara ekki hægt að bjóða virðulegum eldri hjónum uppá, ekki svona anarkista-dót eitthvað) - enn aðrir geta ekki mætt af því það er boðað til of margra mótmæla.

    Og þannig tvístrast allir út um hvippinn og hvappinn. Fara heim til sín, skrá sig í nýjan byltingarsinnaða grúppu á Facebook og undirrita bænaskjal á netinu. Sem er gott og blessað. En það þýðir ekki neitt fyrir fólk að krefjast neins, ef fólkið er ekki tilbúið til að grípa til eigin ráða ef ekki er á það hlýtt. Því valdamenn á Íslandi hafa löngu sýnt að þeir virða fólkið ekki neitt. Þeim er alveg sama. Og afleiðingarnar eru engar. Eins og Dr. Gunni bendir á í Fréttablaðinu munu 33% alltaf kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Og Samfylkingin mun alltaf tala eins og hún hafi aldrei verið í stjórn. Og ráðamenn munu sannfæra fólkið að besta leiðin til að losna við tremmann sé að drekka hann burt á kostnað skattgreiðenda. Þess vegna er IMF á Íslandi. IMF er meira brennivín, meiri kapítalismi, meiri frjálshyggja. En ég meina, maður losnar ekki við tremmann með því að stara út í loftið, eða hvað?

    Brrr.

    Og ég fyllist vonleysi og fer að halda að áþreifanlegustu áhrif kreppunnar á mig - hvað sem líður gengisæðinu - verði þetta vonleysi. Að horfa upp á fólk gera ekki byltingu. Að gera ekki byltingu sjálfur. Að fylgjast með heimskulegasta spuna sem spunninn hefur verið á Íslandi, að fylgjast með gamla Íslandi eldast undir formerkjum Nýs Íslands, að fylgjast með Samfylkingunni æða úr faðmi útrásarmanna í faðm IMF og allt í nafni verkalýðs og velferðar og jöfnuðar.

    Vandamálið er, eins og Haukur Már hefur bent rækilega á, kapítalismi og ef ekki verður horfst í augu við það er ekki von á breytingum. Það má alveg æsa sig við kapítalistana og skamma seðlabankastjóra og djöflast á alla kanta, brenna fána og bölva mönnum - en ef ekki stendur til að breyta um kúrs er það ekki nema hjómið eitt. Ef boðað verður til kosninga, ef ráðamenn gefa sig og boða til kosninga, og ríkisstjórnarflokkarnir fá 65% fylgi - eins og kannanir gefa til kynna - tja, þá getiði sjálfum ykkur um kennt.


    Gerðu athugasemd »



    Kallfæri 4. þáttur

    Fjórði þáttur í útvarpsseríunni Kallfæri - listin að hljóða ljóðum fór í loftið í gærkvöldi. Meðal þeirra sem koma við sögu eru Laurel Woodcock, Beth Anderson, The Four Horsemen, Dokaka, a. rawlings, Christian Bök, Músífölsk og tvíeykið Dagur Sigurðarson & Þór Eldon.

    Smellið hér til að hlýða á þáttinn.

    Enn er hægt að hlusta á þriðja þátt seríunnar á vef Ríkisútvarpsins, en hann fjallaði um pólitíska hljóðaljóðlist. Smellið hér fyrir hann.


    Gerðu athugasemd »



    Kannast einhver við þessa mynd?

    Kannast einhver við þessa mynd, eða úr hvaða ævintýri hún gæti verið? Vonbiðill með svínshöfuð …?

    Þetta er nokkuð mikilvægt og allar vísbendingar væru vel þegnar.


    4 Comments »



    Ingibjörg Sólrún

    “Að vísu róaði Ingibjörg Sólrún eflaust ansi marga á síðasta blaðamannafundi þegar hún sagði hvers vegna þögnin þyrfti að vera í sambandi við lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, flott hjá henni.”

    Segir gurrihar.blog.

    Ég er búinn að spyrja gurrihar.blog, en hún hefur ekki svarað, og ég er hreinlega að farast úr forvitni: Hvernig réttlætti Ingibjörg Sólrún þögnina? Hvað sagði hún sem róaði fólk? Af hverju lét það enginn ganga til mín? Ég er að farast úr taugaveiklun og þarf á ró að halda!


    Gerðu athugasemd »



    Stutt yfirlýsing um ljóðætlun

    Ég ætla meðal annars í ljóðum mínum að gera lesandann meðvitaðan um lesturinn, að hann sé að lesa og það sem hann lesi sé tungumál.

    Ég ætla sem sagt ekki að skrifa texta sem maður líður í gegnum. Sem sagt, ekki eðlilegan texta, heldur þvingaðan, því eðlilegur texti er að nokkru leyti blekking - oft nauðsynleg, en blekking engu að síður og í ljóðlist minni reyni ég að sneiða hjá henni. Hugmyndin er sú að lesturinn verði þvingaður, að lesandinn verði þvingaður.

    Ég býst við að þetta fari í taugarnar á einhverjum. Að einhverjum finnist þetta leiðigjarnt, staglkennt, prógrammerað og - þegar skautað er yfir til að þurfa ekki að þvingast - fyrirsjáanlegt.

    Það verður bara að hafa það.

    Með þessu er ég ekki að segja að allir eigi að gera eins og ég eða að einungis ljóðlist sem reynir að skjóta sér framhjá þessari blekkingu sé góð ljóðlist (það hefur borið við að fólk (skáld) túlki allt sem ég segi sem einhvers konar árás á sig eða ljóðfélagið Ísland í heild sinni).


    Gerðu athugasemd »



    Byltingin

    Að gefnu tilefni vil ég taka fram að eini aðilinn sem hefur rétt til þess að taka völd af ríkisstjórn Íslands eru þegnar Íslands.

    Þá vil ég hnýta við þeirri augljósu staðhæfingu að eina ástæðan fyrir því að skilmálar IMF eru ekki uppi á borðinu er sú að þá á ekki að debatera. Þetta er ekki samkeppnismarkaður og því ekki um viðskiptaleyndarmál að ræða. Kjósi IMF að láta uppi skilmálana er enginn annar sem bíður eftir að gera okkur betra boð. Ástæðan er einfaldlega sú að lýðræði hugnast ekki IMF. Sjóðurinn starfar ekki eftir því og hefur það ekki til viðmiðunar.

    Stórslysakapítalisminn virkar svona: Fyrst er öllu komið í óefni. Síðan er boðin hjálp í skiptum fyrir pólitíska skilmála sem greiða leiðina fyrir þá sem eiga pening að eignast meiri pening á kostnað þeirra sem eiga minni pening. Þetta er gert vegna þess að lýðurinn sem kýs hefur ekki reynst nógu fylgiþægur frjálshyggjunni. Enginn kjósandi - og það sem meira er, enginn marktækur stjórnmálaflokkur - leggur upp með að rústa velferðarkerfum. Kjósendur gera það ekki vegna þess að þeir eru ekki hálfvitar, svona meira og minna, og stjórnmálaflokkar sleppa slíkum kostaboðum til að fæla ekki burt kjósendur.

    En valdið í heiminum snýst minna og minna um atkvæði og meira og meira um seðla. Og seðlarnir eru þreyttir á að þurfa að biðja um rými.


    7 Comments »



    Um skeið var hér lýðræði

    Það mikilvægasta er að núna er farið að stjórna landinu af einhverjum öðrum en þeim sem hafa siglt því í strand. En nú verða þeir að sitja og standa eins og IMF segir næstu sirka fimm árin. […] Við verðum að horfast í augu við það að efnahagskerfi íslenska lýðveldisins er ekki lengur til, Íslandi er stjórnað frá útlöndum.

    Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, í samtali við DV.

    Ég er enginn sérstakur aðdáandi ríkisstjórnarinnar, en hún hefur í það minnsta tilkall til valdsins samkvæmt leikreglunum eins og ég skildi þær. Það hefur stjórn IMF ekki.


    Gerðu athugasemd »



    Og nú gleðjast gumar …

    Á fundinum kom fram að skilyrðin sem sjóðurinn setur fyrir lánveitingunni sé trúnaðarmál sem ekki megi ræða fyrr en búið er að veita lánið , og vonuðust að það yrði innan 10 daga.

    Úr frétt á Vísi .

    Þetta er það sem ég á við þegar ég segi að það sé engin lýðræðisleg hefð á Íslandi. Ef það er ekki hægt að veita lánið án þess að íslenskur almenningur fái fyrst að vita hvaða baggar fylgja því, þá á - og það algerlega undantekningalaust - að hafna láninu. Það er botnlaust fyrirhyggjuleysi - já og mér liggur við að segja heimska - að samþykkja aðra eins lántöku, frá aðilum sem eru þekktir fyrir að hafa ítarlega pólitíska agendu, án þess að þeir sem þurfa að borga lánið til baka og þurfa að taka á sig þær skerðingar á velferðarkerfinu sem lántakan mun hafa í för með sér (og þar er einungis spurning hverjar en ekki hvort - þetta er IMF, ekki Rauði krossinn - og hafandi rekið mig hressilega á takmarkanir og skammsýni íslenskra stjórnmálamanna síðustu vikurnar, tel ég ekki líklegt að þær verði gleðiefni, að vel hafi verið samið) viti hvaða kött í hvers lags sekk þeir eru að kaupa.


    Gerðu athugasemd »



    Bókamessan í Helsinki

    Nordiska ministerrådets kontor i Estland monter: 6e5, lyrikscenen kl. 12.00

    Strändernas svall på bägge sidor om Östersjön har gett upphov till en och annan dikt - männen på de nordliga breddgraderna har känslor som påminner om stormarna uppe i norr, även om männen själva sällan är medvetna om stormarna, kanske för att de äger rum i de nordliga männens huvuden, även om de lyckas fälla både träd och elstolpar. En del män vill ändå tala om dessa stormar - män av det slaget kan tänkas bli poeter.

    Jans Kaus (Estland)
    Joni Pyysalo (Finland)
    Eiríkur Örn Norðdahl (Island)


    Gerðu athugasemd »






    UPPLESTRAR Á NÆSTUNNI

    Ginsberg-kvöld í Arkadia Bookshop, Helsinki
    28.01.2009 - kl.18.00

    Litteraturbar Stanza - Malmö
    Inkonst.com 26.03.2009






    Hafa samband:

      Eiríkur Örn Norðdahl
      Fleminginkatu 9A 10
      00530 Helsinki
      Finnland

      Sundstræti 19
      400 Ísafjörður
      Ísland

      kolbrunarskald@gmail.com



    Smellið á Allen!



    Minn eigin póstlisti

    Netfang:


    Ljóðlistarpóstlisti

    Netfang:
    Heimasíða listans

    Eldra:

    • January 2009
    • December 2008
    • November 2008
    • October 2008
    • September 2008
    • August 2008
    • July 2008
    • June 2008
    • May 2008
    • April 2008
    • October 2007
    • September 2007
    • June 2007