Adachi Tomomi
Í gærkvöldi fór ég í Kaapelitehdas listakomplexið og sá japanska hljóðaljóðalistamanninn Adachi Tomomi performera. Hann las þar nokkur klassísk japönsk tilraunaverk og fáein af sínum eigin. Ég gleymdi myndavélinni heima en tók tvö myndbönd á símann - sem virkar ekkert sérstaklega vel, svo ég nenni varla að hlaða því inn. Hins vegar er til nóg af myndböndum af Tomomi á Youtube. Verkið hér að neðan flutti hann í gær. Skyrtan sem hann er í er alsett nemum sem eiga í einhvers konar sambandi við tölvuna fyrir framan hann og stjórna ólátum og effektum - svo skáldið verður að dansa á meðan hann les.
Leave a Comment