Á beini Teits
„Ég hef notað þá aðferð til að vinsa út lélega líst frá almennilegri list að ef ég skil ekki verkið á 5 sekúndum þá fer verkið í tunnuna. Þetta er heiðarleg aðferð og afar gagnleg.“
Teiti Atlasyni finnst ég ekki skemmtilegur. Hann er í fullum rétti með það.
Ekki veit ég samt, hvernig maður bregst við gagnrýni, sem gerir ráð fyrir að list eigi að vera einföld og auðskilin. Mig grætir menntakerfið. Mig grætir heimskan, and- og metnaðarleysið. Það er ekki viðbúið að Teitur muni nokkurn tíma skilja nokkuð flóknara en ferskeytlur Hallgríms Helgasonar - ekki viðbúið að listin muni nokkurn tíma gera annað fyrir hann en að strjúka honum ljúflega um kollinn, hún mun ekki stækka hann og ekki gera hann meiri, mun ekki segja honum neitt sem hann ekki vissi fyrir (því hann vill ekkert vita sem hann veit ekki fyrir) - sé hann ekki reiðubúinn til að leggja sig eftir henni. Ljóðlistin er ekki best til þess fallinn að veita mönnum innantóma stundarfróun sem innbyrða má einbeitingar- og metnaðarlaust - til þess höfum við SkjáEinn, Teitur, þú þarft ekki einu sinni að kaupa þér áskrift - hann er ókeypis fyrir budduna & andann.
September 5th, 2008 at 4:49 am
Ég er vel að mér í ljóðlist ágæti Eiríkur.
-Þessvegna gagnrýni ég þetta föndur þitt.
September 5th, 2008 at 4:58 am
Það má vel vera að þú sért bærilega að þér í ljóðlist - þó ég efist raunar um það. Þú ert kannski vel að þér í klassískri ljóðlist, og augljóslega fullfær um að gera hlekki á Dylan Thomas - en jafnvel þó þú hefðir hamrað þér leið í gegnum öll helstu skáld síðustu 100 ára, frá Gertrude Stein til Jessicu Smith, breytir það engu um fávísi gagnrýni þinnar, sem, að svo miklu leyti sem hún benti í mína átt, snerist í kringum hattinn minn og einhverjar óljósar fullyrðingar um að ég væri rugludallur - að ónefndri þeirri opinberun sem þú barst sjálfur á borð: að þú hefur hvorki gáfur né þolinmæði til að innbyrða listaverk sem eru flóknari en krossgátan í Barna-DV. Það er alveg sama hvað þú lest mörg ljóð, ef þú lest þau eftir ofangefinni forskrift, þá verðurðu alltaf jafn vitlaus.
September 5th, 2008 at 5:00 am
Sagði ekki einhver að sanna list mætti þekkja á því að ef fíflið stæði frammi fyrir henni þættist það geta gert eins væri það bara nógu vitlaust?
September 5th, 2008 at 6:07 am
Það að list sé óskiljanleg gerir hana ekki merkilega. Þín list er óskiljanleg (og á sjálfsagt að vera það) og verður ekkert merkilegri fyrir vikið.
Gagnrýni mín snérist ekki um hattinn þinn. Ég var bara að benda á að í dag er nóg að þykjast vera listamaður til þess að vera samþykktur sem slíkur.
Flestir í þinum sporum eru, einhverra hluta vegna með hatt á hausnum. Sennilega vegna þess að hann gerir þá “listamannalegri”.
Efnislega fjallaði ég lítið um ljóðin þin. Sagði þau bull í kringum stafavíxl. það var nú öll gagnrýnin.
5 sek aðferðin er hugsanlega nokkuð þröng sía, Ég bakka með hana niður í 50 sekúndur. Ef maður fattar ekki hvað listamaður er að segja á 50 sekúndum er listaverkið ekki að virka.
50 sek. aðferðin er þó skömminni skárri en að ÞYKJAST skilja listaverkið. það er reyndar hið falska flagg sem hæfileikalaust listafólk treystir á.
Þar með er komið einskonar alkahólískt samband milli listamans og áhorfanda. Ferlega sérstakt, satt best að segja. Áhorfandinn þorir ekki að viðurkenna að hann skilur ekki listaverkið.
Gunnar beitir fyrir sig málsvörn hinna lélegu listamanna. Sanna list má sjá út ef áhorfandinn segir. “Svona get ég gert”. Þetta er auðvitað bara bull og ekki svaravert.
List virkar eða virkar ekki. Ef list á að virka þá verður áhorfandinn að skilja verkið. það er alger grunnforsenda.
Ég skil t.d alver að bull-ljóðin þín tilheyra vissri hefð, aö þau skarast á milli súrrealisma og beatnikkanna. En hvað svo? Stóra málið hlýtur að vera hvort bull-ljóðin virki. Ég tel svo ekki vera.
Mér þykir asnalegt af þér að spyrða gafnafari mínu við þessa umræðu. Mér sýnist þú vera að varpa fram þeirri mynd af mér að ég sé einskonar SkjarEinn-Hnakki, einhver Gilsnegger. það kemur bara málinu ekkert við. Efnið sem ég fjalla um skiptir máli í þessu samhengi, ekki fötin sem ég klæðist.
Þú ert samt greininlega upptekin af þessu enda telur þú þig betra skáld með hatt á hausnum.
September 5th, 2008 at 6:30 am
Mín list er ekkert óskiljanlegri en tja … Tíminn og vatnið, Passíusálmarnir, Imbrudagar, Hómerskviður, Leaves of grass …
5 sekúndur, 50 sekúndur - ertu þro… ? Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að svara þessu. Ertu svona tímabundinn? Þarftu ekki bara að finna eitthvað rými í þínu daglega lífi. Þegar maður heldur að allt sem maður skilur ekki á fimmtíu sekúndum sé óskiljanlegt, er maður á villigötum í lífinu.
Gunnar var ekki að verja neitt. Hann var að gera gys að þér. Enda ertu kjáni, ef marka má það sem þú hefur lagt inn hér.
Ég hef ekki minnst einu orði á klæðnað þinn, Teitur. Ég varpa auk þess engum myndum af þér, og þó ég spegli einhverju eða láti þig standa reikningsskil orða þinna, er ekki mér um að kenna þó myndin sé ófögur.
September 5th, 2008 at 6:34 am
-Farðu að búa til bull.
September 5th, 2008 at 7:32 am
Hahaha Eiríkur, nú er aldeilis búið að bösta þig og benda á nekt þína. Teitur Atlason lætur sko ekki plata sig, hann er greinilega löngu búinn að fatta að jólasveinninn er með gerfiskegg og brynja sig rækilega fyrir öllum andlegum árásum.
September 5th, 2008 at 7:36 am
Mikið rétt. Ég hugsa ég neyðist til að segja þetta gott í bili. Nú er bara að krossleggja fingurna og vona að það sé laust pláss fyrir mann í iðnskólanum, þó önnin sé sjálfsagt byrjuð.