Ú á fasismann

Vinna við ljóðabókina Ú á fasismann - og fleiri ljóð gengur vel og er von á bókinni frá Máli og menningu í haust. Í bókinni verða 20 myndljóð á fjörutíu síðum, og henni mun fylgja geisladiskur með hljóðaljóðum, meðal annars úr eldri bókum, sem ekki hafa komið út áður nema í beta-útgáfum á netinu.

Þá styttist í ljóðahátíð Nýhils - þar mun ég lesa á laugardagskvöldinu, en hátíðin hefst með pompi og prakt föstudagskvöldið 22. ágúst. Ég sit svo í panel á laugardeginum. Í þeim hluta sem ég tek þátt í verður leitað svara við þeirri spurningu hvort ljóðlist samtímans sé síður ljóðræn en ljóðlist fortíðar.

SLIS2008 - Sumarbúðir listhneigðra sósíalista - munu gefa út fáein smárit sem verður dreift á ljóðahátíðinni. Af þeim á maður ekki að missa, frekar en sjálfri byltingunni.

Á framtíðardagskránni er svo ljóðahátíðin í Ulvik í Noregi í október og panel-umræður í Turku í nóvember (um vélræn ferli í ljóðlist), og svo er fólk alltaf eitthvað að tala um Manitoba - sem verður væntanlega einhvern tíma að alvöru.

Fjallabaksleiðin hefur verið helguð ljóðlist í bili. Við hjá Norddahl.org teljum okkur skylt að mæla með hinni afbragðsgóðu Fjallabaksleið.

Comments are closed.