Sumarbúðir listhneigðra sósíalista og Ljóðahátíð Nýhils

Ég er búinn að uppfæra upplestrarhluta síðunnar, svo nú er hægt að sjá upplesturinn frá ljóðahátíð Nýhils nú á helginni. Ég las upp nokkur ljóð sem ég hafði ekki lesið áður - þar á meðal Iceland Report on the Observance of Standards and Codes og Djúgasvíli. Já, og Strokleðurjakkaföt keisarans, sem birtist á blogginu á dögunum og kom út í lítilli bók í smáritaseríu SLIS (Sumarbúðir listhneigðra sósíalista), ásamt Handsprengju í hádeginu, eftir mig og Ingólf Gíslason, Algjörri krúttsprengju eftir Viðar Þorsteinsson og þriggja rita frá Hauki Má Helgasyni.

Smellið hér til að sjá upplestrana frá ljóðahátíð.

Leave a Comment