Strokleðurjakkaföt keisarans

Allir vinstrisinnaðir menn eru kommadjöflar,
sturtuhausar og bavíanar með rafmagnsbyssur,
nískupúkar í röndóttum íþróttagöllum með ennisband.

Sem skulu tæma alla vasa og henda sér á grúfu!
Sem skulu tæma alla vasa og henda sér á grúfu!
Sem skulu tæma alla vasa og henda sér á grúfu!

Launaskrið námumanna verður ekki stöðvað með þjósti
- líkt og borðedik jafnast víst ekki á við býflugnahunang –
strandbátar flotskerja setjið andlit í gaupnir!

Áður en það verður um seinan!
Áður en það verður um seinan!
Áður en það verður um seinan!

Slysabörn, ég man ekki hvar ég heyrði það fyrst
innanum glasamottur, flúrlampa og göngugrindur,
að stjaksetning sé skömm skárri en kjöldráttur.

En það er sjálfsagt helvítis lygi!
En það er sjálfsagt helvítis lygi!
En það er sjálfsagt helvítis lygi!

Tags: ,

Svaraðu kallinu!