Strokleðurjakkaföt keisarans – ný erindi og lagfæringar
1.
allir vinstrisinnaðir menn eru kommadjöflar
sturtuhausar & bavíanar með rafmagnsbyssur
nískupúkar í röndóttum íþróttagöllum með ennisband
sem skulu tæma alla vasa & henda sér á grúfu!
sem skulu tæma alla vasa & henda sér á grúfu!
sem skulu tæma alla vasa & henda sér á grúfu!
2.
launaskrið námumanna verður ekki stöðvað með þjósti
líkt & borðedik jafnast víst ekki á við býflugnahunang
strandbátar flotskerja setjið andlit í gaupnir
áður en það verður um seinan!
áður en það verður um seinan!
áður en það verður um seinan!
3.
slysabörn, ég man ekki hvar ég heyrði það fyrst
innanum glasamottur flúrlampa & göngugrindur
að stjaksetning sé skömm skárri en kjöldráttur
en það er sjálfsagt helvítis lygi!
en það er sjálfsagt helvítis lygi!
en það er sjálfsagt helvítis lygi!
4.
stiftamtmenn með brjóstsykursnef í hverjum koppi
ofan í þoturákir kráka & vænglausra sjálfsmorða
í bráðabana við heldri borgara á drykkjuknæpum
uns hver einasti kjaftur er kominn í súr!
uns hver einasti kjaftur er kominn í súr!
uns hver einasti kjaftur er kominn í súr!
5.
stríðalinn af ostum & sanseruðum tundurduflum
raular ræl í eigin eyru & lygnir höfgum augum
með væl í vara stað dýrðar kost & járnaðar iljar
af stað út í eilífðina!
af stað út í eilífðina!
af stað út í eilífðina!
6.
djúpir varalitir sprengja heit & strengja kóralrifin
draga ýsur fyrir skrópaveika & legusára sjúklinga
blása úr nös & gefa svo í til að ekki fari hýran fyrir bí
híf opp & niður með siglutréð!
híf opp & niður með siglutréð!
híf opp & niður með siglutréð!
7.
þetta er ráðherrann sem talar fyrir tómum sal
gefið mér samband við álfakóng hið snarasta
í valdastöðum víðast hvar eru stigamenn lofthræddir
& það brenna sólarljós á breiðum spjótum!
& það brenna sólarljós á breiðum spjótum!
& það brenna sólarljós á breiðum spjótum!
8.
til þerris hengilmænur votar úr hyljum sjávar
á fúnum þurrkhjöllum tyrfðra stjórnsýsluhúsa
það er skafrenningur & ekki dögg fyrir sólu
því nú sleikja hundar blóð & lauga sig konur!
því nú sleikja hundar blóð & lauga sig konur!
því nú sleikja hundar blóð & lauga sig konur!