Solshenitsín og kapítalisminn
Eindregin þjóðernishyggja hans, rétttrúnaður, fyrirlitning á kapítalisma og gagnrýni á rússnesku auðjöfrana sem keyptu upp rússneskan iðnað og auðlindir á spottprís í kjölfar hruns Sovétríkjanna, gerðu hann óvinsælan og hann datt úr tísku og hvarf af opinberum vettvangi.
Úr frétt mbl.is um Aleksander Solshenitsín. Eitt máttugasta bragð sem kapítalisminn hefur fundið upp á – í óendanlegri sjálfsbjargarviðleitni sinni og útsjónarsemi – er hunsunin, sem í bland við taumlausa heimskudýrkun veldur því að allt andóf sem einhverju máli skiptir hverfur í hylinn.
En nú er hann dáinn og því óhætt að kanónísera hann og ramma inn, kallinn sem kaffærði Stalín. Nú erum við góð og minnumst þess hvað allir voru vondir í gamla daga í kommúnismanum.
Hér er ljóð dagsins – það er tileinkað Solshenitsín og heitir Kapitalisminn: Ljóð .