Myndljóðagerð
Það er sannarlega fátt sem getur komið á óvart lengur, ekki síst þegar ljóð eru annars vegar.
Eiríkur Örn Norðdahl hefur á undanförnum árum þróað ljóðmál sitt út í ýmiss konar formtilraunir. Í fyrra kom út ljóðabókin Þjónn, það er fönix í öskubakkanum mínum! Hún er samsett úr ljóðatilraunum af ótrúlegri fjölbreytni, allt frá jóðlljóði og öðrum hljóðljóðum til sextíu síðna prósaljóðabálks með spennuívafi. Einnig er að finna í bókinni ljóð með ýmsum ritvinnsluútfærslum, umbrotstilfærslum, myndljóð, myndagátuljóð, konkretljóð, googleljóð að ógleymdum fjölmörgum vísunum í kveðskap Steins Steinars, umskrifunum á honum og stælingum.
Nú sendir Eiríkur frá sér ljóðabókina Ú á fasismann – og fleiri ljóð sem er beint framhald af myndljóðunum og ritvinnsluútfærslunum í Fönixinum. Vafalaust þykir mörgum erfitt að líta á þessar tilraunir sem ljóð enda ansi djúpt á flestum hefðbundnum eigindum þeirrar listar í bókinni. En þeir sem hafa dágóðan skerf af þolinmæði og fagurfræðilegum tilslökunum ættu að kíkja á þessa bók.
Umfjöllunarefni bókarinnar er fasisminn, eins og nafnið bendir til, en ekki aðeins pólitískur fasismi heldur og menningarlegur. Helsti styrkur bókarinnar er tilraun til pólitískrar ögrunar en veikleiki er að formið og framsetningin flækjast nokkuð fyrir róttækum skilaboðunum.
Með myndljóðunum fylgja hljóðaljóð á diski.
Þröstur Helgason
Dómurinn birtist fyrst í Morgunblaðinu.