Svarbréf Rithöfundasambands
Frá stjórn RSÍ vegna úthlutunar Bókmenntasjóðs
Þegar sú staða kemur upp við úthlutun styrkja eða starfslauna að einstaklingar eða hópar telja á sér brotið eða fram hjá sér gengið, þá er sjálfsagt að gera opinskátt um það með öllum þeim meðulum sem viðkomandi telja þjóna tilganginum.
Aftur á móti er hæpið að stjórn Rithöfundasambandsins hlutist til um einstakar úthlutanir eða fari fram á skýringar, að því tilskyldu að starfað sé innan lagarammans. (http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=”83af37ca-9bfe-432b-a2f7-077fc4eedd6d) Við teljum ekki leika vafa á að svo hafi verið að þessu sinni.
Að því er tekur til innihalds fyrstu úthlutunar útgáfustyrkja Bókmenntasjóðs til þessa, þá þyrfti stjórn RSÍ að hafa aðgang að þeim umsóknum sem sjóðnum bárust til að geta fellt dóm um niðurstöðuna. Að athuguðu máli hljóta menn að sjá að það er hvorki æskilegt né gerlegt. Þá vegur ekki síður þungt að það er fráleitt komin nein reynsla á úthlutanir sjóðs sem er í blábyrjun starfsemi sinnar. Látum að minnsta kosti þau þrjú ár líða sem núverandi stjórn situr áður en við kveðum upp dóma um störf hennar.
Við minnum á að stjórn sjóðsins er skipuð fimm fulltrúum, þar af tveimur tilnefndum af Rithöfundasambandi Íslands. Stjórn RSÍ ber fullt og óskorað traust til þessara fulltrúa sinna og treystir því að þeir standi vörð um hagsmuni bókmenntanna í bráð og lengd, frumsaminna og þýddra.
Gunnarshúsi 7. júlí 2008
Stjórn Rithöfundasambands Íslands
[...] áfram á stjórn sambandsins sem tók erindið fyrir á fyrsta fundi sínum þar á eftir. Svarbréf barst skömmu áður en ég fór til [...]